Beint í efni
Til baka í fundargerðir

Dalvegur 6-8. Beiðni um niðurfellingu kvaðar um gegnum akstur.

Málsnúmer: 1601826

Ferill máls

01

Bæjarráð - 2810. fundur

Frá sviðsstjóra umhverfissviðs, dags. 23. febrúar, lögð fram umsögn um erindi P.S. fasteigna ehf. þar sem óskað er eftir niðurfellingu kvaðar um gegnumakstur á lóðinni Dalvegi 6-8.

Bæjarráð hafnar ósk um niðurfellingu kvaðar með fjórum atkvæðum. Birkir Jón Jónsson greiddi ekki atkvæði.$line$$line$Ármann Kr. Ólafsson, bæjarstjóri, lagði fram eftirfarandi bókun:$line$"Vil vekja athygli á því að undirgöng Skógarlindar undir Reykjanesbraut kom til eftir að kvöð var sett á um gegnumakstur sem gerir útfærsluna flókna.$line$Ármann Kr. Ólafsson"$line$$line$Birkir Jón Jónsson tekur undir bókun Ármanns Kr. Ólafssonar.$line$$line$Ólafur Þór Gunnarsson, Karen Halldórsdóttir, Hjördís Johnson og Ása Richarsdóttir taka undir umsögn sviðsstjóra umhverfissviðs.

02

Bæjarráð - 2805. fundur

Frá Lex lögmannsstofu f.h. P.S. fasteigna ehf., dags. 14. janúar, lögð fram beiðni um niðurfellingu kvaðar um gegnumakstur í lóðarleigusamningi um Dalveg 6-8.

Bæjarráð vísar málinu til umhverfissviðs til umsagnar og umhverfis- og samgöngunefndar.