Bæjarráð, dags. 25. febrúar 2016.
Málsnúmer: 1602017F
Ferill máls
01
Bæjarstjórn - 1133. fundur
2810. fundur bæjarráðs í 33. liðum.
Lagt fram.$line$$line$Ármann Kr. Ólafsson, bæjarstjóri, lagði fram eftirfarandi bókun vegna liðar 33 í fundargerð bæjarráðs: $line$"Bókun við fyrirspurn frá Ólafi þór Gunnarssyni.$line$Það vekur furðu að bæjarfulltrúi Ólafur Þór Gunnarsson, áheyrnarfulltrúi í bæjarráði Kópavogs, skuli nota fundi bæjarráðs til að beita gamaldags klækjapólitík. Forsaga málsins er sú að Vinstri grænir stóðu ekki við niðurstöðu starfshóps sem fjallaði um framtíðarstaðsetningu bæjarskrifstofa Kópavogs sem varabæjarfulltrúi Vinstri grænna skrifaði þó undir, en Ólafur Þór Gunnarsson skoraðist undan þátttöku í starfshópnum. Miðað við hvernig mál skipuðust má ljóst vera að enginn bæjarfulltrúi gat greitt atkvæði um tillögu starfshópsins. Bæjarfulltrúinn beitti sér jafnframt fyrir því að málið fengi ekki umræðu sl. sumar með sérstakri dagskrártillögu þar um. Hann hefur því beitt sér með ólýðræðislegum hætti við meðferð málsins.$line$Ármann Kr. Ólafsson"$line$$line$Ólafur Þór Gunnarsson lagði fram eftirfarandi bókun:$line$"Margur heldur mig sig.$line$Ólafur Þór Gunnarsson"$line$$line$Sverrir Óskarsson lagði fram eftirfarandi tillögu f.h. meirihluta bæjarstjórnar:$line$"Lagt er til að unglingar sem eru 15 ára (fædd 2001) fái meiri sveigjanleika á vinnutíma í Vinnuskóla Kópavogs og eigi möguleika á að ljúka vinnu á skemmri tíma. Bæjarstjórn felur Vinnuskólanum að útfæra tillöguna nánar. $line$Sverrir Óskarsson, Theódóra Þorsteinsdóttir, Ármann Kr. Ólafsson, Margrét Friðriksdóttir, Karen Halldórsdóttir, Hjördís Ýr Johnson, Guðmundur Gísli Geirdal"$line$$line$Tillagan var samþykkt með 11 atkvæðum.