Til baka í fundargerðir
Vinnureglur íþróttadeildar um eftirlit með gjaldskrárbreytingum.
Málsnúmer: 1602091
Ferill máls
01
Íþróttaráð - 57. fundur
Lagt til að inn í reglurnar komi ítarlegri greining á þeirri upplýsingargjöf sem þjónustuveitendur, sem aðild eiga að íþrótta- og tómstundakerfi Kópavogsbæjar, þurfa að leggja fram í upphafi æfingatímabils.
Íþróttaráð samþykkir framlagðar breytingar og felur starfsmönnum að senda vinnureglurnar til kynningar íþróttafélögunum í bænum.
02
Íþróttaráð - 56. fundur
Lögð fram tillaga að nánari útfærslum á vinnureglum íþróttadeildar sem samþykktar voru á 51. fundi ráðsins þann 21. okt. sl.
Almennar umræður. Afgreiðslu frestað og starfsmönnum íþróttadeildar falið að senda framlagða tillögu til umsagnar íþróttafélaganna í Kópavogi að fenginni umsögn bæjarlögmanns.