Beint í efni
Til baka í fundargerðir

Hófgerði 2. Grenndarkynning.

Málsnúmer: 1602444

Ferill máls

01

Bæjarstjórn - 1136. fundur

Frá skipulagsstjóra, dags. 12. apríl, lagt fram að nýju frá byggingarfulltrúa að lokinni kynningu erindi Péturs Örns Björnssonar, arkitekts, f.h. lóðarhafa dags. 1.2.2016 þar sem óskað er eftir breytingum á bílskúr við Hófgerði 2. Á fundi skipulagsnefndar 15.2.2016 var samþykkt með tilvísan til. 44. gr. skipulagslaga nr. 123/2010 að grenndarkynna framlagða tillögu fyrir lóðarhöfum Hófgerðis 4; Holtagerðis 1 og 3. Kynningu lauk 31.3.2016. Engar athugasemdir eða ábendingar bárust á kynningartíma. Skipulagsnefnd samþykkti framlagða tillögu með tilvísan til 44. gr. skipulagslaga nr. 123/2010 og vísaði málinu til bæjarráðs og bæjarstjórnar. Bæjarráð vísaði málinu til bæjarstjórnar til afgreiðslu.

Bæjarstjórn staðfestir afgreiðslu skipulagsnefndar með 10 atkvæðum. Ólafur Þór Gunnarsson greiddi ekki atkvæði.

02

Bæjarráð - 2817. fundur

Frá skipulagsstjóra, dags. 12. apríl, lagt fram að nýju frá byggingarfulltrúa að lokinni kynningu erindi Péturs Örns Björnssonar, arkitekts, f.h. lóðarhafa dags. 1.2.2016 þar sem óskað er eftir breytingum á bílskúr við Hófgerði 2. Á fundi skipulagsnefndar 15.2.2016 var samþykkt með tilvísan til. 44. gr. skipulagslaga nr. 123/2010 að grenndarkynna framlagða tillögu fyrir lóðarhöfum Hófgerðis 4; Holtagerðis 1 og 3. Kynningu lauk 31.3.2016. Engar athugasemdir eða ábendingar bárust á kynningartíma. Skipulagsnefnd samþykkti framlagða tillögu með tilvísan til 44. gr. skipulagslaga nr. 123/2010 og vísaði málinu til bæjarráðs og bæjarstjórnar.

Bæjarráð vísar málinu til bæjarstjórnar til afgreiðslu.

03

Skipulagsnefnd - 1275. fundur

Frá byggingarfulltrúa:$line$Að lokinni kynningu er lagt fram að nýju erindi Péturs Örns Björnssonar, arkitekts, f.h. lóðarhafa dags. 1.2.2016 þar sem óskað er eftir breytingum á bílskúr við Hófgerði 2. Á fundi skipulagsnefndar 15.2.2016 var samþykkt með tilvísan til. 44. gr. skipulagslaga nr. 123/2010 að grenndarkynna framlagða tillögu fyrir lóðarhöfum Hófgerðis 4; Holtagerðis 1 og 3. Kynningu lauk 31.3.2016. Engar athugasemdir eða ábendingar bárust á kynningartíma.

Skipulagsnefnd samþykkti framlagða tillögu með tilvísan til 44. gr. skipulagslaga nr. 123/2010. Vísað til bæjarráðs og bæjarstjórnar.

04

Skipulagsnefnd - 1272. fundur

Frá byggingarfulltrúa:$line$Lagt fram erindi Péturs Örns Björnssonar, arkitekts, f.h. lóðarhafa dags. 1.2.2016 þar sem óskað er eftir breytingum á bílskúr við Hófgerði 2. Í breytingunni felst að núverandi 40 m2 bílskúr á lóðinni verður rifinn og nýr 47 m2 bílskúr ásamt opnu bílskýli byggt í hans stað. Bílskýli verður 6m x 6,3m að stærð sbr. uppdráttum dags. 1.2.2016.

Skipulagsnefnd samþykkti með tilvísan til. 44. gr. skipulagslaga nr. 123/2010 að grenndarkynna framlagða tillögu fyrir lóðarhöfum Hófgerðis 4; Holtagerðis 1 og 3.