Beint í efni
Til baka í fundargerðir

Ummæli formanns bæjarráðs í fréttum. Fyrirspurn frá Ólafi Þór Gunnarssyni.

Málsnúmer: 1602934

Ferill máls

01

Bæjarráð - 2813. fundur

Ólafur Þór Gunnarsson ítrekar fyrirspurn sína frá fundi þann 25. febrúar sl.$line$$line$Ármannn Kr. Ólafsson, bæjarstjóri, lagði fram eftirfarandi bókun:$line$"Ég vek athygli á að formaður bæjarráðs er ekki á fundinum og getur því ekki svarað fyrir sig. Um leið vek ég athygli á að fyrirspurnin hefur ekkert með störf bæjarráðs að gera og ég furða mig á þeirri karlrembu sem birtist í fyrirspurninni.$line$Ármann Kr. Ólafsson"$line$$line$Ólafur Þór Gunnarsson lagði fram eftirfarandi bókun:$line$"Formaður bæjarráðs hefur haft fjórar vikur til að svara fyrirspurninni.$line$Ólafur Þór Gunnarsson"$line$$line$Ármann Kr. Ólafsson, bæjarstjóri, lagði fram eftirfarandi bókun:$line$"Henni ber engin skylda til að svara pólitískum fyrirspurnum af þessum toga.$line$Ármann Kr. Ólafsson"

02

Bæjarráð - 2810. fundur

Ólafur Þór Gunnarsson lagði fram eftirfarandi fyrirspurn:$line$"Fyrirspurn til formanns bæjarráðs.$line$$line$Í hádegisfrétttum Ríkisútvarpsins (RUV) í gær 24.2.2015 mátti ráða að formaður bæjarráðs hefði greitt atkvæði gegn sannfæringu sinni í bæjarstjórn daginn áður, í atkvæðagreiðslu um tillögu hennar og annarra fulltrúa Bjartrar framtíðar og Sjálfstæðisflokks um húsnæði bæjarskrifstofa Kópavogs. Fulltrúi Bjartrar framtíðar er annar oddvita meirihlutans og því í kjörstöðu til að hafa áhrif á framgang mála í sveitarfélaginu. Því er spurt:$line$$line$1. Greiddi formaður bæjarráðs atkvæði í bæjarstjórn gegn sannfæringu sinni ?$line$$line$2. Geta bæjarfulltrúar treyst því að formaðurinn muni fylgja eftir meirihluta ákvörðun bæjarstjórnar í málinu sem hún lagði sjálf fram ?$line$$line$3. Hver verða næstu skref formanns bæjarráðs í málinu ?$line$$line$Ólafur Þór Gunnarsson"