Beint í efni
Til baka í fundargerðir

Bæjarstjórn - 1133. Fundur haldinn 8. mars 2016.

Málsnúmer: 1603003F

Ferill máls

01

Skipulagsnefnd - 1274. fundur

1602022F - Bæjarráð, dags. 3. mars 2016. $line$2811. fundur bæjarráðs í 32. liðum. $line$$line$1602243 - Aðalskipulag Kópavogs 2012-2024. Endurskoðun. Vaxtamörk byggðar. $line$Frá skipulagsstjóra, dags. 23. febrúar, lögð fram með tilvísan í 1. mgr. 30. gr. skipulagslaga nr. 123/2010 og Svæðisskipulag höfuðborgarsvæðisins 2040, sem tók gildi 14. júní 2015, lýsing á skipulagsverkefninu: Breyting á aðalskipulagi nr. 2: Vaxtamörk byggðar, dags. 3. janúar 2016. Skipulagsnefnd samþykkti breytinguna og vísaði málinu til afgreiðslu bæjarráðs og bæjarstjórnar. Bæjarráð frestaði afgreiðslu málsins á fundi sínum þann 25.02.2016. Bæjarráð vísaði málinu til bæjarstjónar til afgreiðslu. Bæjarstjórn staðfestir afgreiðslu skipulagsnefndar með 11 atkvæðum. $line$ $line$1602244 - Aðalskipulag Kópavogs 2012-2024. Endurskoðun. Vatnsvernd. $line$Frá skipulagsstjóra, dags. 23. febrúar, lögð fram með tilvísan í 1. mgr. 30. gr. skipulagslaga nr. 123/2010 og Svæðisskipulag höfuðborgarsvæðisins 2040, sem tók gildi 14. júní 2015, lýsing á skipulagsverkefninu: Breyting á aðalskipulagi nr. 3: Vatnsvernd, dags. 3. janúar 2016. Skipulagsnefnd samþykkti breytinguna og vísaði málinu til afgreiðslu bæjarráðs og bæjarstjórnar. Bæjarráð frestaði afgreiðslu málsins á fundi sínum þann 25.02.2016. Bæjarráð vísaði málinu til bæjarstjórnar til afgreiðslu. Bæjarstjórn staðfestir afgreiðslu skipulagsnefndar með 11 atkvæðum. $line$ $line$1602245 - Aðalskipulag Kópavogs 2012-2024. Endurskoðun. Kópavogsgöng. $line$Frá skipulagsstjóra, dags. 23. febrúar, lögð fram með tilvísan í 1. mgr. 30. gr. skipulagslaga nr. 123/2010 og Svæðisskipulag höfuðborgarsvæðisins 2040, sem tók gildi 14. júní 2015, lýsing á skipulagsverkefninu: Breyting á aðalskipulagi nr. 4: Niðurfelling Kópavogsgangna, dags. 3. janúar 2016. Skipulagsnefnd samþykkti breytinguna og vísaði málinu til afgreiðslu bæjarráðs og bæjarstjórnar. Bæjarráð frestaði afgreiðslu málsins á fundi sínum þann 25.02.2016. Bæjarráð vísaði málinu til bæjarstjórnar til afgreiðslu. $line$$line$Ása Richardsdóttir lagði fram eftirfarandi bókun:$line$"Ég leggst gegn því að opið svæði í Kópavogsdal, sunnan Dalvegar verði breytt í verslunar- og þjónustusvæði í breyttu aðalskipulagi Kópavogs.$line$Opin svæði eiga undir högg að sækja í Kópavogi og vil ég varðveita þetta opna svæði, þó Kópavogsgöng verði ekki lögð. $line$Ása Richardsdóttir"$line$$line$Ármann Kr. Ólafsson, bæjarstjóri, lagði fram eftirfarandi bókun:$line$"Ég tel þetta eina bestu lóðina á höfuðborgarsvæðinu til að þétta byggð.$line$Ármann Kr. Ólafsson"$line$$line$Bæjarstjórn staðfestir afgreiðslu skipulagsnefndar með átta atkvæðum gegn tveimur. Ólafur Þór Gunnarsson greiddi ekki atkvæði. Atkvæði með greiddu Ármann Kr. Ólafsson, Margrét Friðriksdóttir, Karen Halldórsdóttir, Hjördís Ýr Johnson, Guðmundur Gísli Geirdal, Theódóra Þorsteinsdóttir, Sverrir Óskarsson og Birkir Jón Jónsson, en atkvæði á móti greiddu Pétur Hrafn Sigurðsson og Ása Richardsdóttir. $line$ $line$1602247 - Aðalskipulag Kópavogs 2012-2024. Endurskoðun. Sveitarfélagsmörk. $line$Frá skipulagsstjóra, dags. 23. febrúar, lögð fram með tilvísan í 1. mgr. 30. gr. skipulagslaga nr. 123/2010 lýsing á skipulagsverkefninu: Breyting á aðalskipulagi nr. 5: Sveitarfélagamörk í þéttbýli og upplandi Kópavogs, dags. 3. janúar 2016. Skipulagsnefnd samþykkti breytinguna og vísaði málinu til afgreiðslu bæjarráðs og bæjarstjórnar. Bæjarráð frestaði afgreiðslu málsins á fundi sínum þann 25.02.2016. Bæjarráð vísaði málinu til bæjarstjórnar til afgreiðslu. Bæjarstjórn staðfestir afgreiðslu skipulagsnefndar með 11 atkvæðum. $line$ $line$1602248 - Aðalskipulag Kópavogs 2012-2024. Endurskoðun. Miðhverfi, skilgreining. $line$Frá skipulagsstjóra, dags. 23. febrúar, lögð fram með tilvísan í 1. mgr. 30. gr. skipulagslaga nr. 123/2010 og Svæðisskipulag höfuðborgarsvæðisins 2040 ,sem tók gildi 14. júní 2015, lýsing á skipulagsverkefninu: Breyting á aðalskipulagi nr. 6: Miðhverfi skilgreining, dags. 3. janúar 2016. Skipulagsnefnd samþykkti breytinguna og vísaði málinu til afgreiðslu bæjarráðs og bæjarstjórnar. Bæjarráð frestaði afgreiðslu málsins á fundi sínum þann 25.02.2016. Bæjarráð vísaði málinu til bæjarstjórnar til afgreiðslu. Bæjarstjórn staðfestir afgreiðslu skipulagsnefndar með 11 atkvæðum. $line$ $line$1602251 - Aðalskipulag Kópavogs 2012-2024. Endurskoðun. Auðbrekka. $line$Frá skipulagsstjóra, dags. 23. febrúar, lögð fram með tilvísan í 1. mgr. 30. gr. skipulagslaga nr. 123/2010 lýsing á skipulagsverkefninu: Breyting á aðalskipulagi nr. 7: Auðbrekka, dags. 3. janúar 2016. Skipulagsnefnd samþykkti breytinguna og vísaði málinu til afgreiðslu bæjarráðs og bæjarstjórnar. Bæjarráð frestaði afgreiðslu málsins á fundi sínum þann 25.02.2016. Bæjarráð vísaði málinu til bæjarstjórnar til afgreiðslu. Bæjarstjórn staðfestir afgreiðslu skipulagsnefndar með 11 atkvæðum. $line$ $line$1602252 - Aðalskipulag Kópavogs 2012-2024. Endurskoðun. Smárinn vestan Reykjanesbrautar. $line$Frá skipulagsstjóra, dags. 29. febrúar, lögð fram með tilvísan í 1. mgr. 30. gr. skipulagslaga nr. 123/2010 lýsing á skipulagsverkefninu: Breyting á aðalskipulagi nr. 8 Smárinn vestan Reykjanesbrautar dags. 3. janúar 2016. Skipulagsnefnd samþykkti breytinguna og vísaði málinu til afgreiðslu bæjarráðs og bæjarstjórnar. Bæjarráð frestaði afgreiðslu málsins á fundi sínum þann 25.02.2016. Bæjarráð vísaði málinu til bæjarstjórnar til afgreiðslu. $line$Bæjarstjórn staðfestir afgreiðslu skipulagsnefndar með níu atkvæðum. Birkir Jón Jónsson og Ólafur Þór Gunnarsson greiddu ekki atkvæði. $line$$line$1509373 - Nýbýlavegur 78. Grenndarkynning. $line$Frá skipulagsstjóra, dags. 23. febrúar, lögð fram að nýju að lokinni kynningu, frá byggingarfulltrúa, tillaga VA Arkitekta f.h. lóðarhafa dags. 4.11.2015 þar sem óskað er eftir breytingum að Nýbýlavegi 78. Skipulagsnefnd samþykkti tillögu dags. 4.11.2015 með áorðnum breytingum ásamt umsögn dags. 10.2.2016 með tilvísan til 44. gr. skipulagslaga nr. 123/2010 og vísaði málinu til bæjarráðs og bæjarstjórnar. Bæjarráð frestaði afgreiðslu málsins á fundi sínum þann 25.02.2016. Bæjarráð vísaði málinu til bæjarstjórnar til afgreiðslu. $line$Bæjarstjórn staðfestir afgreiðslu skipulagsnefndar með 11 atkvæðum. $line$ $line$1602012F - Skipulagsnefnd, dags. 18. febrúar 2016. $line$1273. fundur skipulagsnefndar í 17. liðum. $line$Lagt fram.$line$$line$Ólafur Þór Gunnarsson tekur undir bókanir Margrétar Júlíu Rafnsdóttur undir liðum 7 og 11 í fundargerð skipulagsnefndar.