Smárinn deiliskipulag, kæra og krafa um stöðvun framkvæmda.
Málsnúmer: 16031031
Ferill máls
01
Skipulagsnefnd - 1285. fundur
Lagður fram úrskurður Úrskurðarnefndar umhverfis- og auðlindamála frá 7. október 2016 þar sem tekin var fyrir kæra á ákvörðun bæjarstjórnar Kópavogs frá 24. nóvember 2015 um að samþykkja breytt deiliskipulag fyrir Smárann vestan Reykjanesbrautar. Úrskurðarörð eru eftirfarandi: "Hafnað er kröfu kæranda um ógildingu ákvörðunar bæjarstjórnar Kópavogs frá 24. nóvember 2015 um að samþykkja breytt deiliskipulag fyrir Smárann vestan Reykjanesbrautar."
Lagt fram.
02
Bæjarráð - 2841. fundur
Frá lögfræðideild, dags. 11. október, lagður fram úrskurður vegna breytinga á deiliskipulagi fyrir Smárann vestan Reykjanesbrautar þar sem gerð var krafa um ógildingu ákvörðunar um breytt deiliskipulag svæðisins.
Lagt fram.
03
Skipulagsnefnd - 1278. fundur
Lagður fram til kynningar bráðabirgðaúrskurður úrskurðarnefndar umhverfis- og auðlindamála í máli nr. 29/2016 þar sem kærð var ákvörðun bæjarstjórnar Kópavogsbæjar frá 24. nóvember 2015 að samþykkja breytt deiliskipulag fyrir Smárann vestan Reykjanesbrautar.$line$Kröfu kærenda hafnað.
Lagt fram.
04
Bæjarráð - 2827. fundur
Frá lögfræðideild, dags. 20. júní, lagður fram bráðabirgðaúrskurður úrskurðarnefndar umhverfis- og auðlindamála í máli nr. 29/2016 þar sem kærðar voru fyrirhugaðar framkvæmdir við Smárann vestan Reykjanesbrautar.
Lagt fram.
05
Skipulagsnefnd - 1274. fundur
Frá úrskurðarnefnd umhverfis- og auðlindamála:$line$Lögð fram til kynningar kæra og stöðvunarkrafa vegna breytinga á deiliskipulagi Smárans, vestan Reykjanesbrautar, dags. 14.3.2016.
Lagt fram.