Beint í efni
Til baka í fundargerðir

Framkvæmdir í Fannborg 2. Fyrirspurn frá Ólafi Þór Gunnarssyni.

Málsnúmer: 16031062

Ferill máls

01

Bæjarráð - 2813. fundur

Ólafur Þór Gunnarsson lagði fram eftirfarandi fyrirspurn:$line$"Undirritaður fer fram á að á bæjarráðsfundi eftir páska (þann 31. mars) verði lögð fram greinargerð um framkvæmdir og ætlaðan framkvæmdahraða vegna endurbóta á Fannborg 2. Þar verði m.a. tilgreint:$line$$line$1. Áætlaður upphafstími og lok framkvæmda$line$2. Ætlað umfang framkvæmda á þessu ári$line$3. Tímasetningar útboða$line$4. Fyrirkomulag starfsemi bæjarskrifstofa meðan á framkvæmdum stendur$line$5. Fyrirkomulag (og staðsetning) bæjarstjórnar- og bæjarráðsfunda meðan á framkvæmdum stendur$line$$line$Ofangreindar spurningar eru lagðar fram í framhaldi af samþykkt bæjarstjórnar þann 23. febrúar s.l. Mikilvægt er að bæjarbúar og bæjarfulltrúar séu upplýstir um framgang málsins í kjölfar samþykktarinnar. Margsinnis hefur komið fram að núverandi ástand húsnæðis bæjarskrifstofanna er óviðunandi og því ríður á að framkvæmdir hefjist sem fyrst og að óvissu starfsmanna um framvindu sé haldið í lágmarki.$line$Ólafur Þór Gunnarsson"