Beint í efni
Til baka í fundargerðir

Skipulagsdagur barna - frábært umhverfi. Tillaga frá Sverri Óskarssyni.

Málsnúmer: 16031099

Ferill máls

01

Skólanefnd - 104. fundur

Lagt fram.

Skólanefnd þakkar áhugaverða tillögu og óskar eftir að menntasvið fái skóla í lið með sér í þróunarverkefni á sviði skipulags- og umhverfismála í samstarfi við skipulagssvið.

02

Skipulagsnefnd - 1274. fundur

Skipulag og umhverfi skiptir okkur öll máli. Það er mikilvægt að við hlúum vel að umhverfi okkar og skiljum ólíkar leiðir við að móta umhverfið, bæta það og byggja upp til framtíðar.$line$ $line$Mikilvægt er að börn fái aukna fræðslu og innsýn inn í það hvernig umhverfið tekur breytingum og hvernig má skipuleggja það á ólíka vegu. Það er gott að skilja og skynja hvernig ákvarðanir um breytingar geta til dæmis haft áhrif á velferð íbúa, öryggi, umhverfisvernd, gæði vatns, leiksvæði, verslunarþjónustu, skólaumhverfi, sorp og annað sem skiptir okkur máli daglega. Það eru ákveðnir þættir sem einkenna gott hverfi og mikilvægt að börn fái tæki og tól til að ræða það og vinna frekar. $line$$line$Í byrjun verði stigin einföld og lítil skref sem byggja á því að bjóða grunnskólum Kópavogs aðstoð og verkefni til notkunar við kennslu sem gæti verið styðjandi við fræðslu um sitt nánasta umhverfi, eigið hlutverk gagnvart umhverfinu, vangaveltur um þróun bæjarfélagsins og mögulegar siðferðisklemmur. Þess má geta að Kópavogsbær býr yfir margvíslegu efni og verkefnum sem nýst geta skólum. Þar má nefna bókina ?Þar á ég heima? um náttúru og umhverfi Kópavogs.

Skipulagsnefnd samþykkti tillöguna og vísaði henni til umsagnar hjá skólanefnd.