Turnahvarf 4, umsókn um atvinnuhúsalóð.
Málsnúmer: 16031417
Ferill máls
01
Bæjarráð - 2841. fundur
Frá sviðsstjóra umhverfissviðs, dags. 7. október, lögð fram beiðni f.h. Landslagna ehf. um heimild til að falla frá lóðarumsókn um úthlutun lóðarinnar Turnahvarfs 4. Lagt er til við bæjarráð að samþykkja að úthlutun lóðarinnar verði afturkölluð og hún auglýst laus til umsóknar á ný.
Bæjarráð samþykkir með fimm atkvæðum að afturkalla úthlutun lóðarinnar Turnahvarfs 4 og auglýsa lóðina lausa til umsóknar á ný.
02
Bæjarstjórn - 1136. fundur
Frá sviðsstjóra umhverfissviðs, dags. 11. apríl, lögð fram umsókn um lóðina Turnahvarf 4 frá Landslögnum ehf., kt. 430304-3640. Lagt er til að bæjarráð samþykki úthlutun lóðarinnar til umsækjanda, enda uppfyllir hann reglur til úthlutunar. Bæjarráð samþykkti með fimm atkvæðum að gefa Landslögnum ehf. kost á byggingarrétti á lóðinni Turnahvarf 4 og vísaði málinu til bæjarstjórnar.
Bæjarstjórn staðfestir afgreiðslu bæjarráðs með 11 atkvæðum.
03
Bæjarráð - 2817. fundur
Frá sviðsstjóra umhverfissviðs, dags. 11. apríl, lögð fram umsókn um lóðina Turnahvarf 4 frá Landslögnum ehf., kt. 430304-3640. Lagt er til að bæjarráð samþykki úthlutun lóðarinnar til umsækjanda, enda uppfyllir hann reglur til úthlutunar.
Bæjarráð samþykkir með fimm atkvæðum að gefa Landslögnum ehf. kost á byggingarrétti á lóðinni Turnahvarf 4 og vísar málinu til bæjarstjórnar.