Beint í efni
Til baka í fundargerðir

Tillaga um breytingu á stigakerfi félagslegra leiguíbúða fyrir aldraða

Málsnúmer: 16031430

Ferill máls

01

Bæjarstjórn - 1144. fundur

Frá deildarstjóra ráðgjafa- og íbúðadeildar, dags. 4. október, lögð fram til staðfestingar bæjarstjórnar breyting á stigakerfi félagslegra leiguíbúða til aldraðra og lækkun aldursviðmiðs til 67 ára aldurs sem bæjarráð samþykkti fyrir sitt leyti á fundi þann 6. október sl. Bæjarráð vísaði málinu til bæjarstjórnar til afgreiðslu.

Bæjarstjórn staðfestir breytingu á stigakerfi félagslegra leiguíbúða til aldraðra og lækkun aldursviðmiðs til 67 ára aldurs með 11 atkvæðum.

02

Bæjarráð - 2842. fundur

Frá deildarstjóra ráðgjafa- og íbúðadeildar, dags. 4. október, lögð fram til staðfestingar bæjarstjórnar breyting á stigakerfi félagslegra leiguíbúða til aldraðra og lækkun aldursviðmiðs til 67 ára aldurs sem bæjarráð samþykkti fyrir sitt leyti á fundi þann 6. október sl.

Bæjarráð vísar málinu til bæjarstjórnar til afgreiðslu.

03

Bæjarráð - 2840. fundur

Frá deildarstjóra ráðgjafa- og íbúðadeildar, dags. 4. október, lögð fram til samþykktar tillaga að breytingu á stigakerfi félagslegra leiguíbúða til aldraðra sem samþykkt var í félagsmálaráði þann 3. október sl.

Bæjarráð samþykkir með fimm atkvæðum framlagða breytingu á stigakerfi félagslegra leiguíbúða til aldraðra og að færa aldursviðmið til 67 ára aldurs.

04

Félagsmálaráð - 1419. fundur

Lagðar voru fram tillögur starfshóps um breytta stigagjöf, að uppfylltum öðrum skilyrðum varðandi umsókn um félagslega leiguíbúð.

Félagsmálaráð taldi tillögurnar til þess fallnar að koma til móts við aldraða íbúa í hjónabandi eða sambúð sem eru í miklum húsnæðisvanda og samþykkti þær fyrir sitt leyti með áorðnum breytingum.

Rannveig María Þorsteinsdóttir deildarstjóri sat fundinn undir þessum lið.

05

Félagsmálaráð - 1408. fundur

Óskað er eftir tveimur fulltrúum félagsmálaráðs í starfshópinn.

Gunnsteinn Sigurðsson og Kristín Sævarsdóttir voru skipuð í starfshópinn.