Beint í efni
Til baka í fundargerðir

Endurgreiðsluhlutfall Kópavogsbæjar vegna lífeyrisskuldbindinga Lífeyrissjóðs starfsmanna Kópavogsbæjar.

Málsnúmer: 1603645

Ferill máls

01

Bæjarráð - 2813. fundur

Frá lífeyrissjóði starfsmanna Kópavogsbæjar, dags. 4. mars, lagt fram erindi vegna hækkunar á endurgreiðsluhlutfalli launagreiðenda á greiddum lífeyri vegna ársins 2016. Stjórn lífeyrissjóðsins samþykkti fyrir sitt leyti að hækka endurgreiðsluhlutfallið í 59% og vísaði málinu til afgreiðslu bæjarstjórnar.

Bæjarráð samþykkir með fimm atkvæðum að endurgreiðsluhlutfall launagreiðenda á greiddum lífeyri vegna ársins 2016 hækki í 59%.$line$$line$Hlé var gert á fundi kl. 8.24. Fundi var fram haldið kl. 8.34.$line$$line$Fjármála- og hagsýslustjóri sat fundinn undir þessum lið.