Beint í efni
Til baka í fundargerðir

Kortlagning í ljósi beiðnar um samstarf

Málsnúmer: 1603724

Ferill máls

01

Félagsmálaráð - 1409. fundur

Lögð var fram umbeðin kortlagning á húsnæðisvanda sbr. bókun félagsmálaráðs dags. 4. apríl 2016.$line$Sviðsstjóra var falið að skipuleggja vettvangsferð að skoða úrræði sem standa til boða á höfuðborgarsvæðinu og upplýsingafund með sérfræðingi á þessu sviði.$line$Rannveig María Þorsteinsdóttir deildarstjóri sat fundinn undir þessum lið.

02

Félagsmálaráð - 1408. fundur

Erindi frá Vonum og björgum

Félagsmálaráð sá sér ekki fært að verða við ósk Vona og bjarga að svo komnu máli. $line$$line$Ráðið gerir sér vel grein fyrir því að um alvarlegan vanda er að ræða og mikilvægi þess að kortleggja þörfina áður en lengra er haldið. Starfsmönnum velferðarsviðs var falið að vinna áfram að málefninu í samræmi við það sem fram kom á fundinum og að leitað verði samstarfs við nágrannasveitarfélögin.$line$$line$Rannveig María Þorsteinsdóttir deildarstjóri sat fundinn undir þessum lið.

03

Bæjarráð - 2813. fundur

Frá Von og Bjargir hjálparsamtökum, dags. 8. mars, lagt fram erindi þar sem óskað er eftir viðræðum um samstarf vegna reksturs heimilis fyrir skjólstæðinga sem eru húsnæðislausir og glíma við erfiðar aðstæður.

Bæjarráð vísar málinu til sviðsstjóra velferðarsviðs og félagsmálaráðs til umsagnar.