Beint í efni
Til baka í fundargerðir

Kostnaður vegna húsnæðismála stjórnsýslu Kópavogsbæjar. Fyrirspurn frá Kristni Degi Gissurarsyni.

Málsnúmer: 1603736

Ferill máls

01

Bæjarráð - 2852. fundur

Birkir Jón Jónsson lagði fram eftirfarandi bókun:

"Þann 10. mars sl. óskaði Kristinn Dagur Gissurarson, varabæjarfulltrúi Framsóknarflokksins, eftir upplýsingum um kostnað vegna húsnæðismála stjórnsýslu bæjarins. Þessu erindi var ekki svarað fyrr en á síðasta fundi bæjarráðs fyrir áramót - rúmlega 8 mánuðum síðar.

Hlutverk kjörinna fulltrúa er að gæta að fjármunum skattgreiðenda og að þeim sé vel varið. Ljóst er að ferlið allt var kostnaðarsamt og því mikilvægt að þær upplýsingar liggi nú fyrir. Ég geri hins vegar alvarlegar athugasemdir við hversu seint erindinu er svarað og mun óska eftir því við forsætisnefnd að fara yfir þau mál.

Birkir Jón Jónsson"

Hlé var gert á fundi kl. 10:05. Fundi var fram haldið kl. 10:15.

Fulltrúar meirihlutans lögðu fram eftirfarandi bókun:

"Það er rangt sem fram kemur í bókun Birkis Jóns Jónssonar um að fyrirspurn Kristins Dags snúi eingöngu að kostnaði enda hefði því verið auðsvarað. Fyrirspurnin er pólitísk og varðaði störf bæjarfulltrúa í starfshópnum, ekki síst störf fulltrúa Framsóknarflokksins. Fyrirspurnin er til að gera stjórnsýslu bæjarins tortryggilega og er ómakleg, enda er bókhald bæjarins öllum opið.

Ármann Kr. Ólafsson, Theódóra Þorsteinsdóttir, Karen Halldórsdóttir, Hjördís Ýr Johnson"

Hlé var gert á fundi kl. 10:16. Fundi var fram haldið kl. 10:22.

Birkir Jón Jónsson lagði fram eftirfarandi bókun:

"Það er með ólíkindum að pólitískt kjörinn bæjarstjóri þurfi rúma 8 mánuði til að svara fyrirspurn sem hann telur pólitísks eðlis. Gildihlöðnum ummælum bæjarstjóra um stjórnsýslu bæjarins sem fram kom í bókun hans er vísað á bug. Kjörnir fulltrúar verða að geta gengið að því sem vísu að fyrirspurnum sé svarað innan eðlilegs tímaramma, öðruvísi er þeim gert ókleyft að rækja skyldur sínar.

Birkir Jón Jónsson"

Ármann Kr. Ólafsson, bæjarstjóri, lagði fram eftirfarandi bókun:

"Ég vil ítreka að Birkir Jón Jónsson sat í umræddri nefnd og hafði allar þessar upplýsingar.

Ármann Kr. Ólafsson"

Birkir Jón Jónsson lagði fram eftirfarandi bókun:

"Fyrirspurnin var frá Kristni Degi Gissurarsyni.

Birkri Jón Jónsson"

Ármann Kr. Ólafsson, bæjarstjóri, lagði fram eftirfarandi bókun:

"Varabæjarfulltrúa Framsóknarflokksins.

Ármann Kr. Ólafsson"

02

Bæjarráð - 2851. fundur

Frá bæjarstjóra, dags. 28. desember, lagt fram svar við fyrirspurn Kristins Dags Gissurarsonar frá 10 mars sl.

Lagt fram.

03

Bæjarráð - 2848. fundur

Kristinn Dagur Gissurarson spurðist fyrir um hvort fyrirspurn hans frá 10. mars sl. verði svarað fyrir áramót.

04

Bæjarráð - 2834. fundur

Á bæjarráðsfundi þann 10. mars 2016 lagði undirritaður fram fyrirspurn um kostnað vegna hugmynda um flutning stjórnsýslusviðs. Bæjarstjóra var falið að taka saman tölur um kostnaðinn.

Birkir Jón Jónsson, bæjarfulltrúi framsóknarflokksins, áréttaði með bókun á bæjarráðsfundi í apríl 2016 að beðið væri eftir svari við fyrirspurn Kristins Dags.



Nú, 25. ágúst 16, hefur ekkert svar borist við fyrirspurninni frá 10. mars. Rétt er að benda á þá staðreynd að sá dráttur að svari í því máli sem hér um ræðir er óviðunandi og mjög á svig við hefðir, lög og reglur er gilda í stjórnsýslunni.

Hverju sætir það ?

Kristinn Dagur Gissurarson

05

Bæjarráð - 2816. fundur

Birkir Jón Jónsson lagði fram eftirfarandi bókun:$line$"Á fundi bæjarráðs þann 10. mars lagði Kristinn Dagur Gissurarson fram spurningar varðandi húsnæðismál stjórnsýslu Kópavogsbæjar. Hér með er ítrekað að þessum spurningum verði svarað.$line$Birkir Jón Jónsson"

06

Bæjarráð - 2812. fundur

1. Hver er kostnaður Kópavogsbæjar vegna vinnu og ráðgjafar frá Mannvit hf. er tengdust hugmyndum um mögulegan flutning bæjarskrifstofanna og opinberaðist fyrst í bæjarráði 18. júní 2015?$line$a. Hvenær fyrst var óskað eftir vinnu Mannvits vegna hugmynda að flutningi bæjarskrifstofanna og hver bað um hana?$line$b. Hversu oft var skýrsla frá Mannviti uppfærð? Óskað ef eftir dagsetningum á uppfærslum og hverju var breytt eða bætt við.$line$c. Annar kostnaður?$line$$line$2. Hver er kostnaður Kópavogsbæjar vegna vinnu og ráðgjafar frá Capacent er tengdust hugmyndum um mögulegan flutning bæjarskrifstofanna og opinberaðist fyrst í bæjarráði 18. júní 2015? Sundurliðun kostnaðar óskast.$line$a. Vegna ráðgjafar og funda?$line$b. Vegna vinnu vegna rýnifundar íbúa, þ.e. undirbúningur, framkvæmd og úrvinnsla?$line$c. Annar kostnaður?$line$$line$3. Hver er kostnaður vegna vinnu Starfshóps um húsnæði stjórnsýslunnar?$line$a. Laun bæjarfulltrúa vegna funda/vinnu í starfshópnum?$line$b. Laun/kostnað vegna vinnu embættismanna bæjarins fyrir Starfshópinn?$line$c. Kostnað vegna annarrar vinnu eða ráðgjafar sem Starfshópurinn óskaði eftir?$line$d. Annar kostnaður?$line$$line$4. Fjölda funda sem bæjarstjóri og formaður bæjarráðs og eða embættismenn á þeirra vegum áttu við verkfræðistofuna Mannvit og Capasent og aðra í ferlinu og kostnað vegna þeirra, þ.m.t. laun embættismanna? Sundurliðun óskast.$line$$line$5. Hver er kostnaður Kópavogsbæjar vegna borgarafundar í Salnum?$line$$line$6. Hver er kostnaður Kópavogsbæjar vegna auglýsinga í tengslum við ferlið?$line$$line$7. Hver er kostnaður (áætlaður) vegna vinnu starfsfólks í tengslum við ferlið, á skipulagssviði og á öðrum sviðum ef þar hefur fallið á kostnaður?$line$$line$8. Annar kosntaður er kann að hafa fallið á bæjarsjóð en er ekki getið eða spurt um hér að ofan?$line$$line$Óskað er eftir skriflegu svari.$line$$line$Kristinn Dagur Gissurarson lagði fram eftirfarandi bókun:$line$"Nú eru rúmar 3 vikur frá samþykkt bæjarstjórnar um endurbætur bæjarskrifstofa Kópavogs. Fyrir liggja teikningar og kostnaðarmat vegna þeirra. Það er óboðlegt að húsnæðið sé vanrækt með þessum hætti og starfsfólki ekki bjóðandi. Hvers vegna hafa endurbætur húsnæðisins ekki enn verið boðnar út?$line$Kristinn Dagur Gissurarson"