Til baka í fundargerðir
Húsnæðismál Skólahljómsveitar
Málsnúmer: 1603751
Ferill máls
01
Bæjarráð - 2854. fundur
Frá sviðsstjórum menntasviðs og umhverfissviðs, dags. 16. janúar, lagt fram erindi um húsnæði fyrir Skólahljómsveit Kópavogs þar sem lagt er til að staðsetning húsnæðis verði við Álfhólsskóla og að byggt verði við núverandi sal skólahúsnæðisins. Óskað er eftir heimild bæjarráðs fyrir hönnun húsnæðisins og gerð útboðsgagna til framkvæmda.
Bæjarráð samþykkir erindið með fimm atkvæðum.
02
Skólanefnd - 112. fundur
Kynning á stöðu mála.
Skólanefnd fagnar að komið sé að því að hefja formlega vinnu við hönnun á húsnæði fyrir skólahljómsveit.
03
Bæjarráð - 2830. fundur
Frá sviðsstjórum menntasviðs og umhverfissviðs, dags. 30. maí, lagt fram minnisblað varðandi húsnæði fyrir Skólahljómsveit Kópavogs.
Lagt fram.