Beint í efni
Til baka í fundargerðir

Bláfjöll. Deiliskipulag skíðasvæðis / húsnæðismál skíðagöngufólks.

Málsnúmer: 1603975

Ferill máls

01

Skipulagsnefnd - 1275. fundur

Lagt fram erindi skíðagöngufélagsins Ullar dags. 5.4.2016. Þá lögð fram umsögn Heilbrigðiseftirlits Hafnarfjarðar- og Kópavogssvæðis dags. 8.4.2016.

Frestað. Skipulagsnefnd óskar eftir umsögn Stjórnar skíðasvæða höfðuborgarsvæðisins, Umhverfisstofnunar og Skipulagsstofnunar.

02

Skipulagsnefnd - 1274. fundur

Lagt fram erindi Skíðagöngufélagsins Ulls dags. 6.3.2016 vegna aðstöðu skíðagöngufólks í Bláfjöllum.

Skipulagsnefnd lagði til að erindi skíðagöngufélagsins Ulls verði tekið inn í þá vinnu sem nú stendur yfir við endurskoðun deiliskipulags Þríhnúka og Bláfjalla.