Bæjarráð - 2818. Fundur haldinn 20. apríl 2016.
Málsnúmer: 1604013F
Ferill máls
01
Skipulagsnefnd - 1276. fundur
1502119 - Hafnarbraut 12. Breytt deiliskipulag. $line$Frá skipulagsstjóra, dags. 12. apríl, lögð fram útfærsla Arkís að breyttu deiliskipulagi Hafnarbrautar 12, dags. 11.4.2016, sbr. meðfylgjandi greinargerð dags. 11.4.2016. Arnar Þór Jónsson, frá Arkís, gerði grein fyrir bygginaráformum. Skipulagsnefnd taldi framlögð byggingaráform vera í samræmi við þau viðmið sem sett voru fram í samþykktu deiliskipulagi fyrir Hafnarbraut 12 og veitir lóðarhafa heimild til að skila gögnum til byggingarfulltrúa. Skipulagsnefnd samþykkti tillögu að breyttu deiliskipulagi með tilvísan til 3. mgr. 43. gr. skipulagslaga nr. 123/2010 og vísaði málinu til bæjarráðs og bæjarstjórnar. Bæjarráð frestaði afgreiðslu málsins á fundi þann 14. apríl sl.$line$Bæjarráð vísar erindinu til bæjarstjórnar til afgreiðslu.
02
Bæjarstjórn - 1136. fundur
2818. fundur bæjarráðs í 16. liðum.
Lagt fram.