Beint í efni
Til baka í fundargerðir

Sérstyrkur 2016- HK v/fræðsluefnis v.samkynhneigð

Málsnúmer: 16041156

Ferill máls

01

Íþróttaráð - 59. fundur

Lagt fram erindi frá HK, dags. 18.apríl sl., þar sem óskað er eftir styrk vegna fræðsluefnis varðandi samkynhneigð og samkynhneigð íþróttafólks, regluleg fræðsla fyrir iðkendur og félagsmenn.

Íþróttaráð hefur ítrekað óskað eftir auknu samstarfi íþróttafélaganna innan Kópavogs. Það verkefni sem hér um ræðir er málefni sem kann að falla vel að samstarfi allra íþróttafélaganna, hvort sem er innan Kópavogs eða á landsvísu, s.s. innan raða ÍSÍ og eða UMFÍ. Íþróttaráð synjar því erindinu eins og það liggur fyrir.