Kársnesbraut 135. Grenndarkynning.
Málsnúmer: 16041206
Ferill máls
01
Bæjarstjórn - 1137. fundur
Frá skipulagsstjóra, dags. 3. maí, lagt fram frá byggingarfulltrúa erindi Verkfræðistofu Hauks Ásgeirssonar dags. í mars 2016, f.h. lóðarhafa þar sem óskað er eftir breytingum á lóðinni Kársnesbraut 135. Í breytingunni felst að byggja ca. 68 m2 bílskúr við suður-lóðamörk sbr. uppdrætti dags. í mars 2016. Þá lagt fram samþykki lóðarhafa Holtagerðis 78, 80, 82; Kársnesbrautar 133, 137 og Kársnesbrautar 112, dags. 25.4.2016. Skipulagsnefnd samþykkti framlagða tillögu með tilvísan til 3. mgr. 43. gr. skipulagslaga nr. 123/2010 og vísaði málinu til bæjarráðs og bæjarstjórnar. Bæjarráð vísaði málinu til bæjarstjórnar.
Bæjarstjórn staðfestir afgreiðslu skipulagsnefndar með 11 atkvæðum.
02
Bæjarráð - 2820. fundur
Frá skipulagsstjóra, dags. 3. maí, lagt fram frá byggingarfulltrúa erindi Verkfræðistofu Hauks Ásgeirssonar dags. í mars 2016, f.h. lóðarhafa þar sem óskað er eftir breytingum á lóðinni Kársnesbraut 135. Í breytingunni felst að byggja ca. 68 m2 bílskúr við suður-lóðamörk sbr. uppdrætti dags. í mars 2016. Þá lagt fram samþykki lóðarhafa Holtagerðis 78, 80, 82; Kársnesbrautar 133, 137 og Kársnesbrautar 112, dags. 25.4.2016. Skipulagsnefnd samþykkti framlagða tillögu með tilvísan til 3. mgr. 43. gr. skipulagslaga nr. 123/2010 og vísaði málinu til bæjarráðs og bæjarstjórnar.
Bæjarráð vísar málinu til bæjarstjórnar.
03
Skipulagsnefnd - 1276. fundur
Frá byggingarfulltrúa:$line$Lagt fram erindi Verkfræðistofu Hauks Ásgeirssonar dags. í mars 2016, f.h. lóðarhafa þar sem óskað er eftir breytingum á lóðinni Kársnesbraut 135. Í breytingunni felst að byggja ca. 68 m2 bílskúr við suður-lóðamörk sbr. uppdrætti dags. í mars 2016. Þá lagt fram samþykki lóðarhafa Holtagerðis 78, 80, 82; Kársnesbrautar 133, 137 og Kársnesbrautar 112, dags. 25.4.2016.
Skipulagsnefnd samþykkti framlagða tillögu með tilvísan til 3. mgr. 43. gr. skipulagslaga nr. 123/2010. Vísað til bæjarráðs og bæjarstjórnar.