Beint í efni
Til baka í fundargerðir

Gulaþing 11. Breytt deiliskipulag.

Málsnúmer: 16041316

Ferill máls

01

Bæjarstjórn - 1139. fundur

Frá skipulagsstjóra, dags. 31. maí, lagt fram að nýju erindi KRark, dags. í apríl 2016, f.h. lóðarhafa þar sem óskað er eftir breyttu deiliskipulagi Gulaþings 11. Í breytingunni felst að farið er út fyrir byggingarreit á suðvesturhlið hússins, svalir ná út úr byggingarreit til norðurs og hluti þakflatar á austurhlið hússins fer að hluta yfir hámarksvegghæð sbr. meðfylgjandi skilmálateikningu í mkv. 1:200 ódags. Á fundi skipulagsnefndar 2.5.2016 var samþykkt með tilvísan til 43. gr. skipulagslaga nr. 123/2010 að grenndarkynna framlagða tillögu fyrir lóðarhöfum Gulaþings 9, 13, 15 og 17. Lagt fram ásamt skriflegu samþykki aðliggjandi lóðarhafa. Skipulagsnefnd samþykkti framlagða tillögu með tilvísan til 3. mgr. 44. gr. skipulagslaga nr. 123/2010 og vísaði málinu til bæjarráðs og bæjarstjórnar. Bæjarráð vísaði málinu til bæjarstjórnar til afgreiðslu.

Bæjarstjórn staðfestir afgreiðslu skipulagsnefndar með 9 samhljóða atkvæðum. Ólafur Þór Gunnarsson og Birkir Jón Jónsson greiddu ekki atkvæði.

02

Bæjarráð - 2824. fundur

Frá skipulagsstjóra, dags. 31. maí, lagt fram að nýju erindi KRark, dags. í apríl 2016, f.h. lóðarhafa þar sem óskað er eftir breyttu deiliskipulagi Gulaþings 11. Í breytingunni felst að farið er út fyrir byggingarreit á suðvesturhlið hússins, svalir ná út úr byggingarreit til norðurs og hluti þakflatar á austurhlið hússins fer að hluta yfir hámarksvegghæð sbr. meðfylgjandi skilmálateikningu í mkv. 1:200 ódags. Á fundi skipulagsnefndar 2.5.2016 var samþykkt með tilvísan til 43. gr. skipulagslaga nr. 123/2010 að grenndarkynna framlagða tillögu fyrir lóðarhöfum Gulaþings 9, 13, 15 og 17. Lagt fram ásamt skriflegu samþykki aðliggjandi lóðarhafa. Skipulagsnefnd samþykkti framlagða tillögu með tilvísan til 3. mgr. 44. gr. skipulagslaga nr. 123/2010 og vísaði málinu til bæjarráðs og bæjarstjórnar.

Bæjarráð vísar málinu til bæjarstjórnar til afgreiðslu.

03

Skipulagsnefnd - 1277. fundur

Lagt fram að nýju erindi KRark, dags. í apríl 2016, f.h. lóðarhafa þar sem óskað er eftir breyttu deiliskipulagi Gulaþings 11. Í breytingunni felst að farið er út fyrir byggingarreit á suðvesturhlið hússins, svalir ná út úr byggingarreit til norðurs og hluti þakflatar á austurhlið hússins fer að hluta yfir hámarksvegghæð sbr. meðfylgjandi skilmálateikningu í mkv. 1:200 ódags. Á fundi skipulagsnefndar 2.5.2016 var samþykkt með tilvísan til 43. gr. skipulagslaga nr. 123/2010 að grenndarkynna framlagða tillögu fyrir lóðarhöfum Gulaþings 9, 13, 15 og 17.$line$$line$Lagt fram ásamt skriflegu samþykki aðliggjandi lóðarhafa.

Skipulagsnefnd samþykkti framlagða tillögu með tilvísan til 3. mgr. 44. gr. skipulagslaga nr. 123/2010. Vísað til bæjarráðs og bæjarstjórnar.$line$$line$Steingrímur Hauksson vék af fundi undir þessum lið.

04

Skipulagsnefnd - 1276. fundur

Lagt fram erindi KRark, dags. í apríl 2016, f.h. lóðarhafa þar sem óskað er eftir breyttu deiliskipulagi Gulaþings 11. Í breytingunni felst að farið er út fyrir byggingarreit á suðvesturhlið hússins, svalir ná út úr byggingarreit til norðurs og hluti þakflatar á austurhlið hússins fer að hluta yfir hámarksvegghæð sbr. meðfylgjandi skilmálateikningu í mkv. 1:200 ódags.$line$$line$Lagt fram ásamt skriflegu samþykki aðliggjandi lóðarhafa.

Skipulagsnefnd samþykkti með tilvísan til 43. gr. skipulagslaga nr. 123/2010 að grenndarkynna framlagða tillögu fyrir lóðarhöfum Gulaþings 9, 13, 15 og 17.$line$$line$Steingrímur Hauksson vék af fundi undir þessum lið.