Til baka í fundargerðir
Hafnarbraut 27. Breytt deiliskipulag.
Málsnúmer: 16041353
Ferill máls
01
Skipulagsnefnd - 1276. fundur
Frá byggingarfulltrúa:$line$Lagt fram erindi Zeppelin arkitekta, f.h. lóðarhafa, dags. 12.4.2016. þar sem óskað er eftir breyttu deiliskipulagi Hafnarbrautar 27. Í breytingunni felst að reisa 79 m2 viðbyggingu við norðurhlið hússins, reusa fjögur skýli á norður lóðamörkum og girða af vinnusvæði lóðar. Byggingarreitur viðbyggingar er 6 m x 13 m og hámarkshæð verður 4,3 m. Skýli við norður-lóðamörk verða 66,7 m2 að stærð hvert og hámarkshæð verður 5,2 m frá aðkomuhæð. Girðing umlykur vinnusvæði á norðurhluta lóðarinna og verður um 3,5 m á hæð sbr. updráttum dags. 12.4.2016.
Frestað.