Hamraborg 1-3. Auglýsingaskilti
Málsnúmer: 16041354
Ferill máls
01
Skipulagsnefnd - 1277. fundur
Frá byggingarfulltrúa:$line$Lagt fram að nýju erindi húsfélagsins í Hamraborg 1-3 þar óskað er eftir heimild til að hengja upp auglýsingaskilti á norður gafl hússins sbr. meðfylgjandi ljósmyndum. Á fundi skipulagsnefndar 2.5.2016 var erindinu frestað.
Í ljósi þeirrar miklu uppbyggingar sem er að hefjast á Auðbrekkusvæðinu er það mat skipulagsnefndar að veita ekki skilyrðislaust leyfi fyrir auglýsingaskilti á norðurgafli Hamraborgar 1-3. Skipulagsnefnd veitir húsfélagi Hamraborgar 1-3 tímabundið leyfi til eins árs fyrir auglýsingaskilti á norðurgafli hússins en leyfið verði endurskoðað að einu ári liðnu. Kópavogsbær áskilur sér rétt til að afturkalla leyfið að ári liðnu og skal húsfélag Hamraborgar 1-3 þá fjarlægja auglýsingaskiltið innan eins mánaðar á sinn kostnað. Sækja skal um leyfið að nýju árlega.
02
Skipulagsnefnd - 1276. fundur
Frá byggingarfulltrúa:$line$Lagt fram erindi húsfélagsins í Hamraborg 1-3 þar óskað er eftir heimild til að hengja upp auglýsingaskilti á norður gafl hússins sbr. meðfylgjandi ljósmyndum.
Frestað.