Iðkendastyrkir íþróttaráðs 2016
Málsnúmer: 16041392
Ferill máls
01
Íþróttaráð - 59. fundur
Lögð fram yfirlitstafla um iðkendur íþróttafélaganna í Kópavogi ásamt tillögu íþróttadeildar að úthlutun iðkendastyrkja/starfsstyrkja íþróttaráðs fyrir árið 2016.$line$Upphæð styrks byggir á því að greiddur er einfaldur styrkur fyrir alla iðkendur sem eru á aldrinum 6-12 ára, en þrefaldur styrkur fyrir iðkendur á aldrinum 13-19 ára.$line$Með áherslum þessum vill íþróttaráð beina því til íþróttafélaganna, að bjóða upp á áhugavert og öflugt íþrótta- og forvarnarstarf fyrir iðkendur sína, með það í huga að sporna gegn ótímabæru brottfalli þeirra úr íþróttum á unglingsaldri.
Íþróttaráð samþykkir framlagða tillögu og úthlutar iðkendastyrkjum fyrir árið 2016 að upphæð kr. 24.205.000,- til íþróttafélaganna í Kópavogi, sbr. dagskrárliði 17 - 43 hér að neðan.