Aðgerðaráætlun Kópavogsbæjar varðandi loftlagsmál og losun gróðurhúsaloftlagstegunda
Málsnúmer: 1604483
Ferill máls
01
Umhverfis- og samgöngunefnd - 81. fundur
Greint frá stöðu mála.
Lagt fram og kynnt.
02
Bæjarráð - 2819. fundur
Frá umhverfisfulltrúa, dags. 20. apríl, lögð fram tillaga um aðgerðaráætlun varðandi loftlagsmál og losun gróðurhúsalofttegunda. Umhverfis- og samgöngunefnd samþykkti tillöguna fyrir sitt leyti á fundi þann 19.04.2016 og vísaði erindinu til bæjarráðs og bæjarstjórnar og til gerðar næstu fjárhagsáætlunar.
Bæjarráð vísar tillögunni til gerðar fjárhagsáætlunar.
03
Umhverfis- og samgöngunefnd - 75. fundur
Lögð fram tillaga þess efnis að Kópavogsbær taki þátt í verkefninu Compact of Mayors sem er alþjóðlegt átak borga og bæja til þess að halda losunabókhald, draga úr losun, framkvæma áhættumat og undirbúa sig undir afleiðingar loftslagsbreytinga. Compact of Mayors gerir kröfu um að losunarbókhald sé fært inn í samræmi við aðferðarfræðina "Global Protocol for Community-Scale Greenhouse Gas Emission Inventories" (GPC). GPC er alþjóðlega viðurkennt tól sem byggir á viðmiðum IPCC (Intergovernmental Panel on Climate Change) um mælingar á losun gróðurhúsalofttegunda. Losunarbókhald Íslands og annarra landa um allan heim er fært samkvæmt viðmiðum IPCC. $line$Þar að auki skuli sveitarfélagið senda inn skýrslu til Carbon Disclosure Project (CDP), sem eru alþjóðleg félagasamtök sem berjast gegn loftslagsbreytingum með því að aðstoða fyrirtæki, bæjarfélög og ríkisstjórnir við að minnka kolefnisspor sitt og framkvæma áhættumat vegna loftslagsbreytinga.$line$$line$
Umhverfis- og samgöngunefnd samþykkir að hefja vinnu við innleiðingu á aðgerðaráætlun varðandi loftlagsmál og losun gróðurhúsaloftlagstegduna með það að leiðarljósi að Kópavogsbær taki þátt í verkefninu Compact of Mayors og haldi losunarbókhald í samræmi við Global Protocol for Community-Scale Greenhouse Gas Emission Inventories (GPC) með það markmið að skila Carbon Disclosure Project (CDP) skýrslu.$line$Umhverfis- og samgöngunefnd vísar erindinu til bæjarráðs og bæjarstjórnar og til gerðar næstu fjárhagsáætlunar.