Til baka í fundargerðir
Digranesvegur 1, bæjarskrifstofur Kópavogsbæjar. Kaupsamningur o.fl. gögn
Málsnúmer: 1605289
Ferill máls
01
Bæjarráð - 2841. fundur
Frá verkefnastjóra umhverfissviðs, dags. 4. október, lagt fram erindi um kaup á húsgögnum og öðrum húsbúnaði fyrir nýjar bæjarskrifstofur að Digranesvegi 1. Lagt er til að leitað verði samninga við Sýrusson hönnunarhús, Á. Guðmundsson, Pennann, InnX og Epal.
Bæjarráð samþykkir með fimm atkvæðum að leitað verði samninga við Sýrusson hönnunarhús, Á. Guðmundsson, Pennann, InnX og Epal um kaup á húsgögnum og öðrum húsbúnaði fyrir nýjar bæjarskrifstofur að Digranesvegi 1.
02
Bæjarráð - 2834. fundur
Frá bæjarlögmanni, dags. 23. ágúst, lagt fram til upplýsinga erindi að því er varðar kostnað vegna flutninga bæjarskrifstofa í nýtt húsnæði að Digranesvegi 1.
Lagt fram.