Furugrund 3. Kynning á byggingarleyfi.
Málsnúmer: 1605983
Ferill máls
01
Bæjarstjórn - 1142. fundur
Frá skipulagsstjóra, dags. 20. september, að lokinni kynningu er lögð fram að nýju frá byggingarfulltrúa tillaga Gríma arkitekta fh. lóðarhafa að breytingu á húsnæði Furugrundar 3. Í breytingunni felst að vegghæð hækkar um 2,5 m. en mænishæð er óbreytt. Í húsinu verða samtals 32 hótelíbúðir 30-45 m2 að flatarmáli ásamt móttöku, starfsmannaaðstöðu, línherbergi, þvottaaðstöðu og geymslum. Með tilkomu millilofts og stækkun útbyggingar á jarðhæð, eykst samanlagt gólfflatarmál á lóð um 520 m2 og verður því eftir breytingu alls 1540 m2. Gert er ráð fyrir útitröppum við báða gafla hússins auk lyftu við austurgaflinn. Fyrikomulag bílastæða á lóð breytist. Uppdrættir í mkv. 1:500 og 1:100 ásamt grreinargerð dags. 13. júní 2016. Á fundi skipulagsnefndar 27. júní 2016 var samþykkt með tilvísan í 44. gr. skipulagslaga nr. 123/2010 að grenndarkynna framlagða tillögu fyrir lóðarhöfum Furugrund 1, 56, 58, 60, 62, 64, 66, 71, 72, 73, 75, 76, 77, 79, 81 og Víðigrund 2. Kynningartíma lauk 1. september 2016. Athugasemdir og ábendingar bárust. Ljóst sé af þeim fjölda athugasemda og ábendinga sem fram komu við kynnt byggingarleyfi fyrir Furugrund 3 að mikil andstaða er meðal hagsmunaaðila um téða breytingu húsnæðisnæðisins. Skipulagsnefnd hafnaði því erindinu og vísaði málinu til afgreiðslu bæjarráðs og bæjarstjórnar. Bæjarráð vísaði málinu til bæjarstjórnar til afgreiðslu.
Bæjarstjórn staðfestir afgreiðslu skipulagsnefndar með 11 atkvæðum.
02
Bæjarráð - 2838. fundur
Frá skipulagsstjóra, dags. 20. september, að lokinni kynningu er lögð fram að nýju frá byggingarfulltrúa tillaga Gríma arkitekta fh. lóðarhafa að breytingu á húsnæði Furugrundar 3. Í breytingunni felst að vegghæð hækkar um 2,5 m. en mænishæð er óbreytt. Í húsinu verða samtals 32 hótelíbúðir 30-45 m2 að flatarmáli ásamt móttöku, starfsmannaaðstöðu, línherbergi, þvottaaðstöðu og geymslum. Með tilkomu millilofts og stækkun útbyggingar á jarðhæð, eykst samanlagt gólfflatarmál á lóð um 520 m2 og verður því eftir breytingu alls 1540 m2. Gert er ráð fyrir útitröppum við báða gafla hússins auk lyftu við austurgaflinn. Fyrikomulag bílastæða á lóð breytist. Uppdrættir í mkv. 1:500 og 1:100 ásamt grreinargerð dags. 13. júní 2016. Á fundi skipulagsnefndar 27. júní 2016 var samþykkt með tilvísan í 44. gr. skipulagslaga nr. 123/2010 að grenndarkynna framlagða tillögu fyrir lóðarhöfum Furugrund 1, 56, 58, 60, 62, 64, 66, 71, 72, 73, 75, 76, 77, 79, 81 og Víðigrund 2. Kynningartíma lauk 1. september 2016. Athugasemdir og ábendingar bárust. Ljóst sé af þeim fjölda athugasemda og ábendinga sem fram komu við kynnt byggingarleyfi fyrir Furugrund 3 að mikil andstaða er meðal hagsmunaaðila um téða breytingu húsnæðisnæðisins. Skipulagsnefnd hafnaði því erindinu og vísaði málinu til afgreiðslu bæjarráðs og bæjarstjórnar.
Bæjarráð vísar málinu til bæjarstjórnar til afgreiðslu.
03
Skipulagsnefnd - 1283. fundur
Frá byggingarfulltrúa:
Að lokinni kynningu er lögð fram að nýju tillaga Gríma arkitekta fh. lóðarhafa að breytingu á húsnæði Furugrundar 3. Í breytingunni felst að vegghæð hækkar um 2,5 m. en mænishæð er óbreytt. Í húsinu verða samtals 32 hótelíbúðir 30-45 m2 að flatarmáli ásamt móttöku, starfsmannaaðstöðu, línherbergi, þvottaaðstöðu og geymslum. Með tilkomu millilofts og stækkun útbyggingar á jarðhæð, eykst samanlagt gólfflatarmál á lóð um 520 m2 og verður því eftir breytingu alls 1540 m2. Gert er ráð fyrir útitröppum við báða gafla hússins auk lyftu við austurgaflinn. Fyrikomulag bílastæða á lóð breytist. Uppdrættir í mkv. 1:500 og 1:100 ásamt grreinargerð dags. 13. júní 2016. Á fundi skipulagsnefndar 27. júní 2016 var samþykkt með tilvísan í 44. gr. skipulagslaga nr. 123/2010 að grenndarkynna framlagða tillögu fyrir lóðarhöfum Furugrund 1, 56, 58, 60, 62, 64, 66, 71, 72, 73, 75, 76, 77, 79, 81 og Víðigrund 2. Kynningartíma lauk 1. september 2016. Athugasemdir og ábendingar bárust frá Kristínu Bjarnadóttur, Álfatúni 13, dags. 26.8.2016, Óðni Þórissyni, Furugrund 71, dags. 27.8.2016, Þóru Kolbeinsdóttur, Sæbólsbraut 30, dags. 27.8.2016, Gísla Kristjánssyni, Furugrund 71, dags. 28.8.2016, Auði Árnadóttur, Furugrund 56, dags. 30.8.2016, Maríu Guðmundsdóttur, Furugrund 71, dags. 30.8.2016, Hjördísi Guðmundsdóttur, Furugrund 81, dags. 30.8.2016, Snorra Hafsteinssyni og Jónínu Ketilsdóttur, Furugrund 60, dags. 31.8.2016, Yngva Bergþórssyni, Furugrund 74, dags. 31.8.2016, Sverri Björnssyni, Kjarrhólma 38, dags. 31.8.2016, Stefáni Sigfinnssyni, Furugrund 73, dags. 31.8.2016, Guðmundi Sigfinnssyni, Birkigrund 27, dags. 31.8.2016, Birnu Kristínu Baldvinsdóttur og Hrannari Gunnarssyni, Furugrund 60, dags. 31.8.2016, Ingigerði Torfadóttur, Víðigrund 59, dags. 31.8.2016, Hrönn Jensdóttur, Furugrund 64, dags. 31.8.2016, Viðari Snæ Sigurðssyni, Furugrund 60, dags. 31.8.2016, Jónínu Aðalsteinsdóttur, Furugrund 40, dags. 31.8.2016, Baldri Þorsteinssyni, Furugrund 64, dags. 31.8.2016, Viggó Ingimari Jónassyni og Sigrúnu Öllu Barðadóttur, Furugrund 28, dags. 31.8.2016, Stefáni Má Stefánssyni, Hörðukór 3, dags. 31.8.2016, Hauk Má Haukssyni, Furugrund 64, dags. 31.8.2016, Guðbjörgu Vallý Ragnarsdóttur, Furugrund 70, dags. 1.9.2016, Gunnhildi Guðmundsdóttur og Ara Guðmundssyni, Furugrund 81, dags. 1.9.2016, Gunnari Leifssyni, Furugrund 70, dags. 1.9.2016, Jóhönnu Tryggvadóttur, Sigríði Óladóttur, Sigurveigu Hafsteinsdóttur, Alberti Jóhannessyni og Olgu Ólafsdóttur, Furugrund 56, dags. 1.9.2016, Elínu Þórðardóttur, Reynigrund 69, dags. 1.9.2016, Þresti Snæ Eiðssyni, Reynigrund 11, dags. 1.9.2016, Hafdísi Hafsteinsdóttur, Agli Guðmundssyni, Helgu Elínborgu Jónsdóttur og Þórunni Tyrfingsdóttur, Furugrund 62, dags. 1.9.2016, Þórunni Stefánsdóttur og Elmari Bergþórssyni, Birkigrund 34, dags. 1.9.2016, Brynju Ingólfsdóttur og Kamil Kluczynski, Furugrund 71, dags. 1.9.2016, Guðbjörgu Jónsdóttur, Sjöfn Sigurjónsdóttur, Gunnari Aðalsteinssyni, Stefáni Má Stefánssyni, Ingvari Óskarssyni og Sigurdísi Þóru Sigþórsdóttur, Furugrund 72, dags. 1.9.2016, Gylfa Jónssyni, Furugrund 38, dags. 1.9.2016, Magnúsi Baldvinssyni, Daltúni 17, dags. 1.9.2016, Sigríði Ólafsdóttur, Reynigrund 71, dags. 1.9.2016, Sigríði Guðrúnu Guðjónsdóttur og Úlfari Má Sófussyni, Furugrund 81, dags. 1.9.2016, Guðrúnu Ágústu Brandsdóttur, Daltúni 17, dags. 1.9.2016, Ólafi Friðrikssyni og Sigurjónu Skarphéðinsdóttur, Furugrund 60, dags. 1.9.2016, Guðrúnu Sturlaugsdóttur, Reynigrund 11, dags. 1.9.2016, Ásdísi Magnúsdóttur og Halldóri Inga Ingimarssyni, Furugrund 60, dags. 1.9.2016, Maríu Guðjónsdóttur, dags. 1.9.2016, Vöku Dóru Róbertsdóttur og Ara Má Heimissyni, Furugrund 64, dags. 1.9.2016, Guðjóni Davíð Karlssyni og Ingibjörgu Ýri Óskarsdóttur, Reynigrund 67, dags. 1.9.2016, Kristni Sveini Ingólfssyni, Furugrund 56. Auk þess bárust athugasemdir frá leikskólanum Furugrund ásamt undirskriftum 79 foreldra og forráðamanna barna í leikskólanum, dags. 1.9.2016, athugasemd frá Magneu Einarsdóttur skólastjóra Snælandsskóla f.h. skólaráðs Snælandsskóla, dags. 1.9.2016 og athugasemd frá foreldrafélagi Snælandsskóla.
Tillaga meirihluta skipulagsnefndar:
"Ljóst er af þeim fjölda athugasemda og ábendinga sem fram eru komnar við kynnt byggingarleyfi fyrir Furugrund 3 að mikil andstaða er meðal hagsmunaaðila um téða breytingu húsnæðisnæðisins. Skipulagsnefnd hafnar því erindinu. Vísað til afgreiðslu bæjarráðs og bæjarstjórnar."
Theódóra Þorsteinsdóttir, Guðmundur Gísli Geirdal, Sigríður Kristjánsdóttir, Júlíus Hafstein, Anna María Bjarnadóttir og Ása Richardsdóttir samþykktu tillöguna. Kristinn Dagur Gissurarson greiddi atkvæði gegn tillögunni.
Bókun frá Guðmundi Geirdal:
"Um leið og ég hafna þessari umsókn vill ég hvetja aðila til að hugsa aðeins til baka og átta sig á því að umsókn sú sem áður lá fyrir og gerði ráð fyrir litlum íbúðum, var sennilega það besta fyrir hverfið.
Það liggur fyrir að bærinn er ekki að fara að kaupa húsið og því tel ég best færi á því að samþykkja skipulagsbreytingu til að hægt sé að gera litlar íbúðir í húsinu".
Tillaga frá Ásu Richardsdóttur:
"Undirrituð leggur til að Kópavogsbær bjóði fulltrúum íbúa hverfisins og eigendum Furugrundar 3 á fund þar sem leitað verði lausnar um nýtingu Furugrundar 3, hugsanlega með aðkomu bæjarins".
Ása Richardsótti og Kristinn Dagur Gissurarson samþykkja tillöguna. Theódóra Þorsteinsdóttir, Sigríður Kristjánsdóttir, Anna María Bjarnadóttir og Júlíus Hafstein greiddu atkvæði gegn tillögunni. Guðmundur Geirdal sat hjá við afgreisðlu tillögunnar.
Fundarhlé kl. 17:45.
Fundi fram haldið kl. 17:55.
Bókun frá Theódóru Þorsteinsdóttur:
"Meirihluti skipulagsnefndar leggur til að hafið verði íbúasamráð við íbúa hverfisins og fasteignareiganda um framtíðarnotkun hússins".
Ása Richardsdóttir og Arnþór Sigurðsson taka undir bókunina.
Bókun frá Kristni Degi Gissurarsyni:
"Undiritaður Kristinn Dagur Gissurarson átelur vinnubrögð skipulagsnefndar í þessu máli þar sem ekki er orðið við óskum um frestun, til þess að starfsfólk skipulagssviðs Kópavogsbæjar geti farið yfir athugasemdir sem bárust og leggja niðurstöðuna fyrir skipulagsnefnd á næsta fundi eins og venja er.
Rétt er að taka fram að undirritaður lagði til fyrir um tveim árum að Kópavogsbær myndi kaupa húsið og leysa þannig þann hnút sem þetta mál var þá þegar komið í. Er vísað í fyrri bókan varðandi Furugrund 3".
04
Skipulagsnefnd - 1278. fundur
Frá byggingarfulltrúa:$line$Lögð fram tillaga Gríma arkitekta fh. lóðarhafa að breytingu á húsnæði Furugrundar 3. Í breytingunni felst að vegghæð hækkar um 2,5 m. en mænishæð er óbreytt. Í húsinu verða samtals 32 hótelíbúðir 30-45 m2 að flatarmáli ásamt móttöku, starfsmannaaðstöðu, línherbergi, þvottaaðstöðu og geymslum. Með tilkomu millilofts og stækkun útbyggingar á jarðhæð, eykst samanlagt gólfflatarmál á lóð um 520 m2 og verður því eftir breytingu alls 1540 m2. Gert er ráð fyrir útitröppum við báða gafla hússins auk lyftu við austurgaflinn. Fyrikomulag bílastæða á lóð breytist. Uppdrættir í mkv. 1:500 og 1:100 ásamt grreinargerð dags. 13. júní 2016.
Skipulagsnefnd samþykkir með tilvísan í 44. gr. skipulagslaga nr. 123/2010 að grenndarkynna framlagða tillögu fyrir lóðarhöfum Furugrund 1, 56, 58, 60, 62, 64, 66, 71, 72, 73, 75, 76, 77, 79, 81 og Víðigrund 2.$line$$line$Bókun frá Ásu Richardsdóttur:$line$"Íbúðahótel af þessari stærð, á þessum stað, svo nærri leik- og grunnskóla, getur haft í för með sér ófyrirséðan hávaða og rask. Ég leggst gegn þessari tillögu".$line$$line$Theódóra Þorsteinsdóttir, Andrés Pétursson, Guðmundur Geirdal, Ármann Kr. Ólafsson, Júlíus Hafstein og Kristinn Dagur Gissurarson voru samþykk tillögunni.