Bæjarstjórn - 1139. Fundur haldinn 7. júní 2016.
Málsnúmer: 1606003F
Ferill máls
01
Skipulagsnefnd - 1278. fundur
1602251 - Aðalskipulag Kópavogs 2012-2024. Endurskoðun. Skipulagslýsing: Auðbrekka. $line$Frá skipulagsstjóra, dags. 31. maí, lögð fram að nýju að lokinni kynningu, með tilvísan í 1. mgr. 30. gr. skipulagslaga nr. 123/2010, lýsing á skipulagsverkefninu: Breyting á aðalskipulagi nr. 7: Auðbrekka, dags. 3. janúar 2016. Kynningu lauk 4.5.2016. Erindi bárust frá Skipulagsstofnun, dags. 22.4.2016, sem gerir ekki athugasemdir við framlagða lýsingu verkefnisins; frá Vegagerðinni, dags. 3.5.2016, sem gerir ekki athugasemdir við framlagða lýsingu verkefnisins; frá Mosfellsbæ, dags. 4.5.2016, sem gerir ekki athugasemdir við framlagða lýsingu verkefnisins. Fyrir liggur tillaga að breytingu á Aðalskipulagi Kópavogs 2012-2024, Auðbrekka, dagsett 10. maí 2016. Um er að ræða 3. breytingu frá staðfestingu þess 24. febrúar 2014. Breytingin tekur á auknum fjölda íbúða og aukningu á atvinnuhúsnæði í Auðbrekku miðað við gildandi Aðalskipulag Kópavogs. Í breytingartillögunni er ekki gert ráð fyrir að hnika frá stefnu aðalskipulags um svæðið en lagt er til að fjölga íbúðum úr 165 í 365 og fermetrum í atvinnuhúsnæði um 20.000 ofanjarðar. Skipulagsnefnd lagði til við bæjarstjórn að samþykkja tillöguna til auglýsingar skv. 1 mgr. 31. gr. skipulagslaga nr. 123/2010 að undangenginni kynningu fyrir íbúum og hagsmunaaðilum skv. 2. mgr. 30. gr. skipulagslaga nr. 123/2010, og vísaði málinu til bæjarráðs og bæjarstjórnar. Bæjarráð vísaði málinu til bæjarstjórnar til afgreiðslu. $line$Bæjarstjórn staðfestir afgreiðslu skipulagsnefndar með 9 samhljóða atkvæðum. Ólafur Þór Gunnarsson og Birkir Jón Jónsson greiddu ekki atkvæði. $line$ $line$1602252 - Aðalskipulag Kópavogs 2012-2024. Endurskoðun. Skipulagslýsing: Smárinn vestan Reykjanesbrautar. $line$Frá skipulagsstjóra, dags. 31. maí, lögð fram að nýju að lokinni kynningu, með tilvísan í 1. mgr. 30. gr. skipulagslaga nr. 123/2010, lýsing á skipulagsverkefninu: Breyting á aðalskipulagi nr. 8: Smárinn vestan Reykjanesbrautar, dags. 3. janúar 2016. Kynningu lauk 4.5.2016. Erindi bárust frá Skipulagsstofnun, dags. 22.4.2016, sem gerir ekki athugasemdir við framlagða lýsingu verkefnisins; frá Vegagerðinni, dags. 3.5.2016, sem gerir ekki athugasemdir við framlagða lýsingu verkefnisins; frá Mosfellsbæ, dags. 4.5.2016, sem gerir ekki athugasemdir við framlagða lýsingu verkefnisins; frá Reykjavíkurborg, dags. 6.5.2016, sem gerir ekki athugasemdir við framlagða lýsingu verkefnisins. Fyrir liggur tillaga að breytingu á Aðalskipulagi Kópavogs 2012-2024, Smárinn vestan Reykjanesbrautar, dagsett 10. maí 2016. Um er að ræða 2. breytingu frá staðfestingu þess 24. febrúar 2014. Breytingin tekur á auknum fjölda íbúða í Smáranum vestan Reykjanesbrautar miðað við gildandi Aðalskipulag Kópavogs. Í breytingartillögunni er ekki gert ráð fyrir að hnika frá stefnu aðalskipulags um svæðið en lagt er til að fjölga íbúðum úr 500 í 620. Skipulagsnefnd lagði til við bæjarstjórn að samþykkja tillöguna til auglýsingar skv. 1. mgr. 31. gr. skipulagslaga nr. 123/2010 að undangenginni kynningu fyrir íbúum og hagsmunaaðilum skv. 2. mgr. 30. gr. skipulagslaga nr. 123/2010, og vísaði málinu til bæjarráðs og bæjarstjórnar. Bæjarráð vísaði málinu til bæjarstjórnar til afgreiðslu. $line$Bæjarstjórn staðfestir afgreiðslu skipulagsnefndar með 9 samhljóða atkvæðum. Ólafur Þór Gunnarsson og Birkir Jón Jónsson greiddu ekki atkvæði. $line$ $line$1510546 - Breiðahvarf 15. Breytt deiliskipulag. $line$Frá skipulagsstjóra, dags. 31. maí, lagt fram að nýju erindi lóðarhafa Breiðahvarfs 15 dags. 22.11.2015 þar sem óskað er eftir að breyta deiliskipulagi Breiðahvarfs 15. Athugasemdir bárust við kynnta tillögu. Á fundi skipulagsnefndar 11.4.2015 var málinu frestað og skipulagsnefnd fól skipulagsstjóra að funda með aðilum málsins. Greint frá fundi sem haldinn var með hlutaðeigandi aðila. Skipulagsnefnd hafnaði framlagðri tillögu og vísaði málinu til bæjarráðs og bæjarstjórnar. Bæjarráð vísaði málinu til bæjarstjórnar til afgreiðslu. $line$Bæjarstjórn staðfestir afgreiðslu skipulagsnefndar með 9 samhljóða atkvæðum. Ólafur Þór Gunnarsson og Birkir Jón Jónsson greiddu ekki atkvæði. $line$ $line$16041316 - Gulaþing 11. Breytt deiliskipulag. $line$Frá skipulagsstjóra, dags. 31. maí, lagt fram að nýju erindi KRark, dags. í apríl 2016, f.h. lóðarhafa þar sem óskað er eftir breyttu deiliskipulagi Gulaþings 11. Í breytingunni felst að farið er út fyrir byggingarreit á suðvesturhlið hússins, svalir ná út úr byggingarreit til norðurs og hluti þakflatar á austurhlið hússins fer að hluta yfir hámarksvegghæð sbr. meðfylgjandi skilmálateikningu í mkv. 1:200 ódags. Á fundi skipulagsnefndar 2.5.2016 var samþykkt með tilvísan til 43. gr. skipulagslaga nr. 123/2010 að grenndarkynna framlagða tillögu fyrir lóðarhöfum Gulaþings 9, 13, 15 og 17. Lagt fram ásamt skriflegu samþykki aðliggjandi lóðarhafa. Skipulagsnefnd samþykkti framlagða tillögu með tilvísan til 3. mgr. 44. gr. skipulagslaga nr. 123/2010 og vísaði málinu til bæjarráðs og bæjarstjórnar. Bæjarráð vísaði málinu til bæjarstjórnar til afgreiðslu. $line$Bæjarstjórn staðfestir afgreiðslu skipulagsnefndar með 9 samhljóða atkvæðum. Ólafur Þór Gunnarsson og Birkir Jón Jónsson greiddu ekki atkvæði. $line$ $line$1507047 - Hamraborg 3. Gistiheimili. Grenndarkynning. $line$Frá skipulagsstjóra, dags. 31. maí, lagt fram að nýju að lokinni kynningu erindi Studio apartments þar sem óskað er eftir að breyta hluta Hamraborgar 3 í gistiheimiili sbr. uppdrætti dags. 12.1.2016. Á fundi skipulagsnefndar 31.3.2016 var samþykkt með tilvísan til. 44. gr. skipulagslaga að grenndarkynna framlagða tillögu fyrir lóðarhöfum Hamraborgar 1 og 5. Kynningu lauk 9.5.2016. Engar athugasemdir eða ábendingar bárust. Skipulagsnefnd samþykkti framlagða tillögu með tilvísan til 44. gr. skipulagslaga nr. 123/2010 og vísaði málinu til bæjarráðs og bæjarstjórnar. Bæjarráð vísaði málinu til bæjarstjórnar til afgreiðslu. $line$Bæjarstjórn staðfestir afgreiðslu skipulagsnefndar með 7 samhljóða atkvæðum. Ólafur Þór Gunnarsson, Birkir Jón Jónsson, Pétur Hrafn Sigurðsson og Ása Richardsdóttir greiddu ekki atkvæði. $line$ $line$16011467 - Kópavogsbakki 2. Breytt deiliskipulag. $line$Frá skipulagsstjóra, dags. 31. maí, lagt fram að nýju erindi Gláma-Kím arkitekta, dags. 26.1.2016, f.h. lóðarhafa þar sem óskað er eftir breyttu deiliskipulagi Kópavogsbakka 2. Á fundi skipulagsnefndar 18.2.2016 var samþykkt með tilvísan til 43. gr. skipulagslaga nr. 123/2010 að grenndarkynna framlagða tillögu fyrir lóðarhöfum Kópavogsbakka 1, 3, 4, 5, 6, 7, 8, 9, 10, 11, 13 og 15. Kynning lauk 11.4.2016. Athugasemdir bárust frá Jónasi Haraldssyni, Kópavogsbakka 9, dags. 11.3.2016; frá Birni Inga Sveinssyni, Kópavogsbakka 8, dags. 14.3.2016; frá Jóni Daða Ólafssyni, Kópavogsbakka 7, dags. 1.4.2016; frá Páli Kristjánssyni, Kópavogsbakka 1, dags. 6.4.2016. Á fundi skipulagsnefndar 2.5.2016 var málinu frestað. Lagt fram að nýju ásamt umsögn skipulags- og byggingardeildar dags. 30.5.2016. Skipulagsnefnd samþykkti tillögu að breyttu deiliskipulagi Kópavogsbakka 2 ásamt umsögn dags. 30.5.2016, með tilvísan til 43. gr. skipulagslaga nr. 123/2010 og vísaði málinu til bæjarráðs og bæjarstjórnar. Bæjarráð vísaði málinu til bæjarstjórnar til afgreiðslu. $line$Bæjarstjórn staðfestir afgreiðslu skipulagsnefndar með 7 samhljóða atkvæðum. Ólafur Þór Gunnarsson, Birkir Jón Jónsson, Pétur Hrafn Sigurðsson og Ása Richardsdóttir greiddu ekki atkvæði.