Beint í efni
Til baka í fundargerðir

Tillaga um rannsókn á launamuni kynja hjá Kópavogsbæ

Málsnúmer: 16061202

Ferill máls

01

Skipulagsnefnd - 1279. fundur

Tillaga frá Ásu Richardsdóttur og Kristínu Sævarsdóttur, þar sem lagt er til að bæjarstjórn Kópavogs samþykki að fela stjórnsýslusviði bæjarins að greina, út frá launagögnum ársins 2015, hvort og þá hver launamunur kynja er, hjá háskólamenntuðu starfsfólki Kópavogsbæjar og að allsherjar launakönnun verði gerð meðal alls starfsfólks bæjarins fyrir árslok 2016.$line$

02

Bæjarráð - 2830. fundur

Frá bæjarstjóra, lagt fram minnisblað frá starfsmannastjóra og jafnréttisráðgjafa, dags. 27. júní sl.

Lagt fram.$line$$line$Bókun bæjarráðs:$line$"Bendum á nýja samþykkt bæjarstjórnar frá 28. júní s.l."

03

Bæjarstjórn - 1140. fundur

Tillaga frá Ásu Richardsdóttur og Kristínu Sævarsdóttur, þar sem lagt er til að bæjarstjórn Kópavogs samþykki að fela stjórnsýslusviði bæjarins að greina, út frá launagögnum ársins 2015, hvort og þá hver launamunur kynja er, hjá háskólamenntuðu starfsfólki Kópavogsbæjar og að allsherjar launakönnun verði gerð meðal alls starfsfólks bæjarins fyrir árslok 2016.$line$

Ármann Kr. Ólafsson, bæjarstjóri, lagði fram eftirfarandi afgreiðslutllögu: Í ljósi þess að nú þegar er hafin vinna við launarannsókn á stjórnsýslusviði, í samræmi við stefnu bæjarins í jafnréttismálum og fyrri ákvarðanir bæjarstjórnar, er lagt til að tillögunni sé vísað til meðferðar jafnréttis- og mannréttindanefndar og starfsmannastjóra bæjarins.$line$$line$Hlé var gert á fundi kl. 17.01. Fundi var fram haldið kl. 17.08.$line$$line$Tillöguflytjendur drógu tillögu sína til baka en bæjarstjórn samþykkir með 11 atkvæðum eftirfarandi:$line$Bæjarstjórn Kópavogs samþykkir að flýta þeirri vinnu sem þegar er hafin hjá stjórnsýslusviði bæjarins að greina, út frá launagögnum ársins 2015, hvort og þá hver launamunur kynja er, hjá starfsfólki Kópavogsbæjar. Vinnu verði lokið fyrir árslok 2016.