Beint í efni
Til baka í fundargerðir

Ósk um viðræður við bæjaryfirvöld Kópavogs vegna mögulegs samstarfs um uppbyggingu einkaspítala og hótels á Glaðheimalóðinni.

Málsnúmer: 16061234

Ferill máls

01

Bæjarráð - 2830. fundur

Frá MCPB ehf., dags. 22. júní, lagt fram erindi um uppbyggingu einkaspítala auk hótels á Glaðheimasvæði þar sem óskað er eftir viðræðum við bæjaryfirvöld um mögulegt samstarf.

Bæjarráð samþykkir með þremur atkvæðum gegn tveim atkvæðum Péturs Hrafns Sigurðssonar og Ólafs Þórs Gunnarssonar að vísa málinu til bæjarstjóra til viðræðna og frekari upplýsingaöflunar.$line$$line$Bókun: $line$"Einkavæðing í heilbrigðiskerfinu er nú þegar gengin of langt með tilheyrandi kostnaðaraukningu fyrir sjúklinga. Undirritaðir telja stofnun einkaspítala ekki muni leiða til góðs í þjónustu við sjúklinga hér á landi og leggjast gegn heimild til bæjarstjóra til að ræða mögulegt samstarf um uppbyggingu einkaspítala og hótels í Kópavogi.$line$Pétur Hrafn Sigurðsson Bæjarfulltrúi Samfylkingarinnar$line$Ólafur Þór Gunnarsson bæjarfulltrúi VG"$line$$line$Fundarhlé kl. 9.05. Fundur hófst aftur kl. 9.10.$line$$line$Bókun:$line$"Kópavogsbær hefur almennt séð verið tilbúinn til viðræðna um áhugaverð uppbyggingarverkefni í bænum. Leikreglur í heilbrigðiskerfinu eru á hendi ríkisins en ekki sveitarfélagsins. $line$Ármann Kr. Ólafsson$line$Karen E. Halldórsdóttir$line$Hjördís Ýr Johnson$line$Sverrir Óskarsson"$line$$line$Fundarhlé kl. 9.12. Fundur hófst aftur kl. 9.19$line$$line$Bókun:$line$"Erindi MCPB ehf. felur í sér ósk um samstarf við Kópavogsbæ um uppbyggingu einkaspítala. Slíkt er ekki í verkahring sveitarfélaga eins og kemur fram í bókun fulltrúa Sjálfstæðisflokks og Bjartrar framtíðar. $line$Pétur Hrafn Sigurðsson Bæjarfulltrúi Samfylkingarinnar$line$Ólafur Þór Gunnarsson bæjarfulltrúi VG"$line$$line$Bókun:$line$"Samstarfið snýr að skipulagsmálum.$line$Ármann Kr. Ólafsson$line$Karen E. Halldórsdóttir$line$Hjördís Ýr Johnson$line$Sverrir Óskarsson"