Dalvegur 4, Eldsmiðjan (Foodco hf). Umsagnarbeiðni vegna umsóknar um nýtt rekstrarleyfi
Málsnúmer: 1606792
Ferill máls
01
Bæjarráð - 2826. fundur
Frá lögfræðideild, dags. 13. júní, lagt fram bréf Sýslumannsins á höfuðborgarsvæðinu, dags. 9. júní, þar sem óskað er umsagnar um umsókn Foodco hf., kt. 660302-2630, um nýtt rekstrarleyfi fyrir veitingahús í flokki I, á staðnum Eldsmiðjan, að Dalvegi 4, 201 Kópavogi, skv. 10. gr. laga nr. 85/2007 um veitingastaði, gististaði og skemmtanahald og 23. gr. rgl. nr. 585/2007. Samkvæmt 1. tl. 4. mgr. 10. gr. laga nr. 85/2007 staðfestir sveitarstjórn, sem umsagnaraðili, að afgreiðslutími og staðsetning staðar sem umsókn lýtur að sé innan þeirra marka sem reglur og skipulag sveitarfélagsins segja til um. $line$Staðsetning er í samræmi við gildandi skipulag og afgreiðslutími er í samræmi við ákvæði 4. mgr. 25. gr. lögreglusamþykktar fyrir Kópavogsbæ nr. 675/2015.
Bæjarráð samþykkir umsóknina fyrir sitt leyti með fimm atkvæðum og staðfestir að staðsetning er í samræmi við gildandi skipulag og afgreiðslutími er í samræmi við ákvæði 4. mgr. 25. gr. lögreglusamþykktar fyrir Kópavogsbæ nr. 675/2015.