Framkvæmd nýrra laga um almennar íbúðir
Málsnúmer: 1607229
Ferill máls
01
Bæjarráð - 2866. fundur
Frá Íbúðalánasjóði, dags. 5. apríl, lögð fram niðurstaða úthlutunarnefndar vegna síðari úthlutunar stofnframlaga 2016 þar sem umsókn Kópavogsbæjar er samþykkt að teknu tilliti til þeirra breytinga sem greinir í eftirfarandi áliti nefndarinnar.
Lagt fram.
Bókun bæjarráðs:
"Bæjarráð fagnar niðurstöðu úthlutunarnefndar stofnframlaga sem er í samræmi við umsókn bæjarins til sjóðasins."
02
Bæjarráð - 2852. fundur
Frá Íbúðalánasjóði, dags. 30. desember, lögð fram afgreiðsla á umsókn Kópavogsbæjar um stofnframlag á grundvelli laga um almennar íbúðir nr. 52/2016 til kaupa á 37 íbúðum í Kópavogi fyrir fatlaða og skjólstæðinga félagsþjónustu. Ekki var unnt að samþykkja umsóknina að svo stöddu þar sem frekari gagna er þörf og gefst Kópavogsbæ kostur á að breyta umsókninni til samræmis við athugasemdir úthlutunarnefndar Íbúðalánasjóðs.
Bæjarráð vísar málinu til úrvinnslu fjármálastjóra og bæjarlögmanns.
03
Bæjarráð - 2842. fundur
Frá Íbúðalánasjóði, dags. 13. október, lagt fram erindi út af framkvæmd laga nr. 52/2016 um stofnstyrki til almennra íbúða, þar sem óskað er eftir upplýsingum frá sveitarfélaginu um fjölda úthlutaðra lóða til byggingar íbúðahúsnæðis frá árinu 2013, fjölda íbúða sem byggðar voru á lóðunum, lóðarverð og gatnagerðargjöld þeirra lóða sem úthlutað var á tímabilinu.
Bæjarráð vísar málinu til bæjarstjóra til afgreiðslu.
04
Bæjarráð - 2838. fundur
Frá Íbúðalánasjóði, dags. 12. september, lagt fram erindi vegna opnun umsókna um stofnframlög til byggingar eða kaupa á íbúðarhúsnæði skv. lögum um almennar íbúðir nr. 52/2016.
Bæjarráð vísar málinu til bæjarstjóra til afgreiðslu.
05
Bæjarráð - 2833. fundur
Frá bæjarstjóra, kynning frá Íbúðalánasjóði og Sambandi íslenskra sveitarfélaga varðandi framkvæmd nýrra laga um almennar íbúðir nr. 52/2016.
Lagt fram.
06
Bæjarráð - 2832. fundur
Frá Íbúðalánasjóði, dags. 13. júlí, lagt fram erindi varðandi framkvæmd nýrra laga um almennar íbúðir nr. 52/2016.
Lagt fram. Bæjarstjóra falið að óska eftir kynningu frá Íbúðalánasjóði og Sambandi íslenskra sveitarfélaga á næsta fund bæjarráðs.
Bókun:
"Ég fagna þessum aðgerðum stjórnvalda í húsnæðismálum. Það er brýnt að Kópavogur sýni metnað í því að stuðla að fjölgun á ódýrum og hagkvæmum leiguíbúðum. Rétt er að halda til haga skýrslu um húsnæðismál sem unnin var þverpólitískt með aðkomu allra flokka í Kópavogi - þar voru m.a. lagðar til aðgerðir sem samræmast þessum áherslum stjórnvalda. Þessar aðgerðir munu bæta stöðu margra fjölskyldna í húsnæðismálum enda um gríðarlega aðkallandi verkefni að ræða.
Birkir Jón Jónsson"