Beint í efni
Til baka í fundargerðir

Umsókn um launað námsleyfi veturinn 2017-2018

Málsnúmer: 16082112

Ferill máls

01

Bæjarráð - 2849. fundur

Frá starfsmannastjóra, dags. 6. desember, lögð fram beiðni Ásmundar R. Richardssonar um námsleyfi og lagt til að honum verði veitt launað námsleyfi í 3 mánuði, frá október til desember á árinu 2017, gegn því skilyrði að hann starfi hjá Kópavogsbæ að námi loknu í þrefaldan þann tíma. Þeim hluta umsóknarinnar er lýtur að námsleyfi fyrir árið 2018 er vísað frá.

Bæjarráð samþykkir með fimm atkvæðum að veita Ásmundi R. Richardssyni launað námsleyfi í 3 mánuði á árinu 2017 gegn því skilyrði að hann vinni áfram hjá Kópavogsbæ að námi loknu.