Ljóðasamkeppnin Ljóðstafur Jóns úr Vör og Dagar ljóðsins.
Málsnúmer: 16091059
Ferill máls
01
Lista- og menningarráð - 66. fundur
Arndís Þórarinsdóttir, Bókasafni Kópavogs, kynnir Daga ljóðsins og undirbúning hátíðar Jóns úr Vör.
Nefndin lýsir mikilli ánægju með undirbúning að metnaðarfullri dagskrá Daga ljóðsins sem verða 21. janúar til 28. janúar.
02
Lista- og menningarráð - 63. fundur
Ráðið ákveður verðlaunafé í ljóðasamkeppni Ljóðstafs Jóns úr Vör og Ljóðasamkeppni grunnskóla Kópavogs. Ljóðasamkeppnin verður auglýst bráðlega og frestur til að senda inn ljóð rennur út 12. desember. Í dómnefnd sitja: Bjarni Bjarnason, Anton Helgi Jónsson, tilnefndur af Rithöfundarsambandi Íslands og Ásdís Óladóttir. Ljóðahátíðin fer venju samkvæmt fram 21. janúar.
Lista- og menningarráð ákveður að veita samtals 600.000 kr í verðlaun í ljóðasamkeppninni Ljóðstafur Jóns úr Vör. Verðlaunaféð skiptist þannig að 300.000 kr. verði veittar fyrir fyrsta sætið, 200.000 kr. fyrir annað sætið og 100.000 kr. fyrir þriðja sætið. Jafnframt verði 10.000 kr. veittar í verðlaun fyrir fyrsta sætið í Ljóðasamkeppni grunnskóla Kópavogs, 10.000 kr. fyrir annað sætið og 10.000 kr. fyrir þriðja sætið. Jafnframt ákveður ráðið að veita auknu fjármagni í hátíðina sjálfa.