Til baka í fundargerðir
Hamraborg 7, Iceland Comfort Apartments. Umsagnarbeiðni vegna nýs rekstrarleyfis f. gististað í fl. II
Málsnúmer: 1609328
Ferill máls
01
Bæjarráð - 2837. fundur
Frá lögfræðideild, dags. 8. september, lagt fram bréf Sýslumannsins á höfuðborgarsvæðinu, dags. 6. september, þar sem óskað er umsagnar um umsókn CPLA ehf., kt. 440407-2420, um nýtt rekstrarleyfi fyrir gististað í flokki II, að Hamraborg 7, 200 Kópavogi, skv. 10. gr. laga nr. 85/2007 um veitingastaði, gististaði og skemmtanahald og 23. gr. rgl. nr. 585/2007. Samkvæmt 1. tl. 4. mgr. 10. gr. laga nr. 85/2007 staðfestir sveitarstjórn sem umsagnaraðili að afgreiðslutími og staðsetning staðar sem umsókn lýtur að sé innan þeirra marka sem reglur og skipulag sveitarfélagsins segja til um.
Bæjarráð samþykkir umsóknina fyrir sitt leyti með fimm atkvæðum og staðfestir að umfang rekstrarleyfisins samrýmist stefnu skipulags.