Fundargerðir nefnda. Afgreiðsla bæjarstjórnar 27. september 2016.
Málsnúmer: 1609943
Ferill máls
01
Umhverfis- og samgöngunefnd - 79. fundur
1609943L - Bæjarstjórn - 1142
Lögð fram til samþykktar drög að nýrri samþykkt um meðhöndlun úrgangs í Kópavogi, sem samþykkt var í bæjarráði þann 14. júlí sl. Málið var tekið fyrir í heilbrigðisnefnd þann 29. ágúst sl. sem mælti með því við bæjarstjórn að samþykkja framkomin drög að nýrri samþykkt um meðhöndlun úrgangs í Kópavogi og auglýsa samkvæmt lögum um hollustuhætti og mengunarvarnir. Bæjarstjórn samþykkti með 11 atkvæðum að vísa samþykkt um meðhöndlun úrgangs í Kópavogi til seinni umræðu.
Bæjarstjórn samþykkir framlögð drög að samþykkt um meðhöndlun úrgangs í Kópavogi með 11 atkvæðum.
Lögð fram til samþykktar drög að nýrri samþykkt um meðhöndlun úrgangs í Kópavogi, sem samþykkt var í bæjarráði þann 14. júlí sl. Málið var tekið fyrir í heilbrigðisnefnd þann 29. ágúst sl. sem mælti með því við bæjarstjórn að samþykkja framkomin drög að nýrri samþykkt um meðhöndlun úrgangs í Kópavogi og auglýsa samkvæmt lögum um hollustuhætti og mengunarvarnir. Bæjarstjórn samþykkti með 11 atkvæðum að vísa samþykk
t um meðhöndlun úrgangs í Kópavogi til seinni umræðu.
Bæjarstjórn samþykkir framlögð drög að samþykkt um meðhöndlun úrgangs í Kópavogi með 11 atkvæðum.
02
Bæjarstjórn - 1142. fundur
Lagðar fram fundargerðir bæjarráð frá 15. og 22. september, afgreiðslna byggingarfulltrúa frá 12. ágúst, 26. júlí og 2. september, eigendafunda Strætó frá 5. september, forsætisnefndar frá 21. september, forvarna- og frístundanefndar frá 12. september, leikskólanefndar frá 15. september, skipulagsnefndar frá 5. og 19. september, skólanefndar frá 19. september, skólanefndar MK frá 13. september, stjórnar Sambands íslenskra sveitarfélaga frá 2. og 24. júní og 2. september, stjórnar Slökkviliðs höfuðborgarsvæðisins frá 22. apríl og 16. september, stjórnar SSH frá 5. september og stjórnar Strætó frá 9. september.
Lagt fram.