Beint í efni
Til baka í fundargerðir

Áætlun um stofnun búsetuúrræðis á Nýbýlavegi 30

Málsnúmer: 1610154

Ferill máls

01

Velferðarráð - 18. fundur

Gerð grein fyrir stöðu mála varðandi stofnun búsetuúrræðis að Nýbýlavegi. Velferðarráð fagnar því að samningur er í höfn og að stefnt sé að opnun heimilisins í byrjun desember nk.

02

Bæjarráð - 2885. fundur

Frá félagsmálastjóra og innkaupafulltrúa, dags. 3. október, lagt fram tilboð í "Rekstur áfangaheimilis að Nýbýlavegi 30", val á verktaka.

Bæjarráð samþykkir með fimm atkvæðum að leitað verði samninga við lægstbjóðanda Samhjálp um verkið "Rekstur áfangaheimilis að Nýbýlavegi 30".

Bókun:

Ég hefði talið eðlilegra að bærinn sæi sjálfur um rekstur en að kaup hann í verktöku.

Ólafur Þór Gunnarsson

Bókun:

Það sjónarmið Vinstri grænna kemur ekki á óvart.

Ármann Kr. Ólafsson

03

Velferðarráð - 14. fundur

Lagt fram til kynningar.

04

Bæjarráð - 2880. fundur

Frá deildarstjóra ráðgjafa- og íbúðadeildar, dags. 22. ágúst, lagt fram erindi þar sem óskað er eftir heimildar til útboðs varðandi stofnun áfangaheimilis á Nýbýlavegi 30.

Bæjarráð samþykkir erindið með fimm atkvæðum.

Ólafur Þór Gunnarsson tekur undir bókun Arnþórs Sigurðssonar í fundargerð velferðarráðs um málið.

05

Velferðarráð - 13. fundur

Velferðarráð samþykkir tillögu formanns ráðsins um að hafin verði undirbúningur útboðs skv. tillögu starfsmanna með fjórum atkvæðum, Sverris Óskarssonar, Ragnheiðar Dagsdóttur, Helgu Sigrúnar Harðardóttur og Gunnsteins Sigurðssonar.

Arnþór Sigurðsson situr hjá og leggur fram eftirfarandi bókun: ,,Það er mín skoðun að Kópavogsbær eigi að reka úrræði að þessu tagi."



Ólöf Pálína Úlfarsdóttir lýsir yfir að hún styðji framlagða tillögu.

06

Velferðarráð - 12. fundur

Lagt fram til upplýsingar.

07

Velferðarráð - 11. fundur

Staða undirbúnings búsetuúrræðis við Nýbýlaveg var kynnt. Verið er að kanna valkosti um rekstur úrræðisins og möguleika á samstarfi við utanaðkomandi fagaðila og verða þær upplýsingar lagðar fram á fyrsta fundi velferðarráðs í ágúst nk. Óskað var eftir minnisblaði um stöðu málsins á næsta fundi ráðsins.

08

Velferðarráð - 9. fundur

Sviðsstjóra velferðarsviðs var falið að kanna valkosti um rekstur úrræðisins og möguleika á samstarfi við utanaðkomandi fagaðila.

09

Velferðarráð - 8. fundur

Afgreiðslu frestað.

10

Velferðarráð - 6. fundur

Staða undirbúnings.

Lögð var fram til umræðu greinargerð um stöðu undirbúnings.

11

Bæjarstjórn - 1153. fundur

12

Bæjarráð - 2861. fundur

13

Velferðarráð - 4. fundur

Óskað var eftir því að tveir fulltrúar velferðarráðs tækju þátt í undirbúningshópi vegna opnunar úrræðis á Nýbýlavegi. Tilnefndir voru Guðmundur G. Geirdal og Arnþór Sigurðsson.

14

Velferðarráð - 2. fundur

Greint var frá stöðu mála.

Rannveig María Þorsteinsdóttir deildarstjóri sat fundinn undir þessum lið.