Beint í efni
Til baka í fundargerðir

Auðbrekka 2. Breytt aðkoma að bílastæðum.

Málsnúmer: 1610194

Ferill máls

01

Bæjarstjórn - 1144. fundur

Frá skipulagsstjóra, dags. 18. október, lagt fram frá byggingarfulltrúa erindi Helga M. Hermannssonar f.h. lóðarhafa Auðbrekku 2 dags. 26.9.2016 þar sem óskað er eftir að innkeyrslu verði breytt að þeim hluta Auðbrekku 2 sem kallað er bakhús, sbr. meðfylgjandi afstöðumynd sem sýnir æskilega staðsetningu innkeyrslu. Skipulagsnefnd hafnaði erindinu og vísaði málinu til afgreiðslu bæjarráðs og bæjarstjórnar. Bæjarráð vísaði málinu til bæjarstjórnar til afgreiðslu.

Bæjarstjórn staðfestir afgreiðslu skipulagsnefndar með 11 atkvæðum og hafnar erindinu.

02

Bæjarráð - 2842. fundur

Frá skipulagsstjóra, dags. 18. október, lagt fram frá byggingarfulltrúa erindi Helga M. Hermannssonar f.h. lóðarhafa Auðbrekku 2 dags. 26.9.2016 þar sem óskað er eftir að innkeyrslu verði breytt að þeim hluta Auðbrekku 2 sem kallað er bakhús, sbr. meðfylgjandi afstöðumynd sem sýnir æskilega staðsetningu innkeyrslu. Skipulagsnefnd hafnaði erindinu og vísaði málinu til afgreiðslu bæjarráðs og bæjarstjórnar.

Bæjarráð vísar málinu til bæjarstjórnar til afgreiðslu.

03

Skipulagsnefnd - 1285. fundur

Frá byggingarfulltrúa:

Lagt fram erindi Helga M. Hermannssonar f.h. lóðarhafa Auðbrekku 2 dags. 26.9.2016 þar sem óskað er eftir að innkeyrslu verði breytt að þeim hluta Auðbrekku 2 sem kallað er bakhús, sbr. meðfylgjandi afstöðumynd sem sýnir æskilega staðsetningu innkeyrslu.

Hafnað. Vísað til afgreiðslu bæjarráðs og bæjarstjórnar.