Fannborg 2, 4 og 6, sala fasteigna.
Málsnúmer: 1611147
Ferill máls
01
Bæjarstjórn - 1177. fundur
Lagður fram undirritaður kaupsamningur ásamt fylgigögnum vegna sölu Kópavogsbæjar á fasteignunum Fannborg 2, 4 og 6. Einnig lagt fram samkomulag vegna kaupanna. Þá var lagður fram húsaleigusamningur vegna Fannborgar 6.
Fulltrúar Framsóknarflokks, Samfylkingar og VG lögðu fram eftifarandi tillögu um frestun:
"Við mótmælum harðlega þeim vinnubrögðum sem meirihluti Bjartrar Framtíðar og Sjálfstæðisflokks hafa viðhaft vegna sölu á Fannborg 2, 4 og 6. Það á að horfa heilstætt á uppbyggingu svæðisins líkt og fulltrúar Framsóknarflokks, Samfylkingar og Vinstri grænna hafa ítrekað lagt til.
Setning um "eins konar miðbæ" í 7. grein samkomulags um sameiginleg markmið er í besta falli hjákátleg. Hér er um að ræða eignir á besta stað á höfuðborgarsvæðinu, nálægt samgöngumannvirkjum, skólum og annarri þjónustu og því afar brýnt að vanda vel til verksins.
Það er jafnframt með öllu óásættanlegt að taka ákvörðun um svo stórt hagsmuna- og skipulagsmál nú rétt fyrir kosningar og rétt að ný bæjarstjórn taki ákvörðun sem þessa. Við leggjum því til að málinu verði frestað.
Birkir Jón Jónsson, Pétur Hrafn Sigurðsson, Ása Richardsdóttir, Margrét Júlía Rafnsdóttir"
Hlé var gert á fundi kl. 17:10. Fundi var fram haldið kl. 17:40.
Meirihluti Sjálfstæðisflokks og Bjartrar framtíðar lagði fram eftirfarandi bókun:
"Undirrituð fagna því að komin sé kaupsamningur á sölu fasteigna bæjarins við Fannborg. Þetta þýðir að uppbygging þar mun komast á skrið og fjölga íbúðum í Kópavogi. Á bæjarráðsfundi þann 24. ágúst 2017 segir í bókun VG, Framsóknar og Samfylkingarinnar. "Undirrituð fagna því að húsnæðisskýrsla Kópavogs verði lögð til grundvallar uppbyggingu á reitnum. Hér er minnihlutinn að vísa til sölu á umræddum fasteignum bæjarins. Undirrituð lýsa yfir ánægju með þau tækifæri sem felast í sölu fasteigna Kópavogsbæjar". Skipulag í tengslum við söluna mun taka mið af húsnæðisskýrslu Kópavogsbæjar sem unnin var í þverpólitískri sátt allra flokka og felur í sér fjölgun félagslegra íbúða. Auk þess samþykkti bæjarráð fyrir skömmu að fela umhverfissviði að vinna tillögur/hugmyndir að heildrænni hönnun á miðsvæði Hamraborgarsvæðisins frá Neðstutröð að Kópavogskirkju.
Ármann Kr. Ólafsson, Margrét Friðriksdóttir, Karen Halldórsdóttir, Hjördís Ýr Johnson, Guðmundur Geirdal, Theódóra Þorsteinsdóttir og Hreiðar Oddsson"
Hlé var gert á fundi kl. 17:41. Fundi var fram haldið kl. 17:49.
Fulltrúar Samfylkingar, Framsóknarflokks og VG lögðu fram eftirfarandi bókun:
"Sú aðferð sem meirihluti Sjálfstæðisflokks og Bjartar framtíðar vill viðhafa í þessu mikilvæga máli, býður upp að hagnaðarsjónarmið verktakans verði ráðandi við uppbyggingu Fannborgarreitsins á kostnað hagsmuna heildarinnar og Kópavogsbúa allra.
Pétur Hrafn Sigurðsson, Ása Richardsdóttir, Birkir Jón Jónsson, Margrét Júlía Rafnsdóttir"
Hlé var gert á fundi kl. 17:50. Fundi var fram haldið kl. 17:52.
Meirihluti Sjálfstæðisflokks og Bjartrar framtíðar lagði fram eftirfarandi bókun:
"Minnihlutinn virðist ekki átta sig á því að það er komið á bindandi kauptilboð á milli aðila. Ef Kópavogsbær efnir ekki inntak þess kann bærinn að hafa skapað sér skaðabótaskyldu. Það væri ekki gott veganesti fyrir nýja bæjarstjórn.
Ármann Kr. Ólafsson, Margrét Friðriksdóttir, Karen Halldórsdóttir, Hjördís Ýr Johnson, Guðmundur Geirdal, Theódóra Þorsteinsdóttir og Hreiðar Oddsson"
Hlé var gert á fundi kl. 18:00. Fundi var fram haldið kl. 18:16.
Fulltrúar Samfylkingar, Framsóknarflokks og VG lögðu fram eftirfarandi bókun:
"Við mótmælum harðlega þeirri túlkun bæjarstjóra að tillaga Samfylkingar, VG og Framsóknar um frestun málsins til næsta fundar geti valdið Kópavogsbæ skaðabótaskyldu.
Það er ámælisvert og ekki í samræmi við góða stjórnsýslu að gögn málsins skuli ekki hafa verið lögð fyrir bæjarráð áður en þau komu til bæjarstjórnar.
Pétur Hrafn Sigurðsson, Ása Richardsdóttir, Birkir Jón Jónsson, Margrét Júlía Rafnsdóttir"
Hlé var gert á fundi kl. 18:18. Fundi var fram haldið kl. 18:20.
Meirihluti Sjálfstæðisflokks og Bjartrar framtíðar lagði fram eftirfarandi bókun:
"Ákvörðun um sölu fasteigna er á höndum bæjarstjórnar lögum samkvæmt.
Ármann Kr. Ólafsson, Margrét Friðriksdóttir, Karen Halldórsdóttir, Hjördís Ýr Johnson, Guðmundur Geirdal, Theódóra Þorsteinsdóttir og Hreiðar Oddsson"
Tillaga fulltrúa Framsóknarflokks, Samfylkingar og VG um frestun var felld með atkvæðum Ármanns Kr. Ólafssonar, Margrétar Friðriksdóttur, Karenar Halldórsdóttur, Hjördísar Ýr Johnson, Guðmundar Geirdal, Theódóru Þorsteinsdóttur og Hreiðars Oddssonar en atkvæði með frestun greiddu Pétur Hrafn Sigurðsson, Ása Richardsdóttir, Birkir Jón Jónsson og Margrét Júlía Rafnsdóttir.
Forseti bar undir fundinn kaupsamning um Fannborg 2, 4 og 6 og var hann samþykktur með atkvæðum Ármanns Kr. Ólafssonar, Margrétar Friðriksdóttur, Karenar Halldórsdóttur, Hjördísar Ýr Johnson, Guðmundar Geirdal, Theódóru Þorsteinsdóttur og Hreiðars Oddssonar gegn atkvæðum Péturs Hrafns Sigurðssonar, Ásu Richardsdóttur, Birkis Jóns Jónssonar og Margrétar Júlíu Rafnsdóttur.
Þá bar forseti undir fundinn húsaleigusamning um Fannborg 6 og var hann samþykktur með atkvæðum Ármanns Kr. Ólafssonar, Margrétar Friðriksdóttur, Karenar Halldórsdóttur, Hjördísar Ýr Johnson, Guðmundar Geirdal, Theódóru Þorsteinsdóttur og Hreiðars Oddssonar gegn atkvæði Birkis Jóns Jónssonar. Pétur Hrafn Sigurðsson, Ása Richardsdóttir og Margrét Júlía Rafnsdóttir greiddu ekki atkvæði.
Forseti bar undir fundinn samkomulag varðandi uppbyggingu í Fannborg 2 - 6 og var það samþykkt með atkvæðum Ármanns Kr. Ólafssonar, Margrétar Friðriksdóttur, Karenar Halldórsdóttur, Hjördísar Ýr Johnson, Guðmundar Geirdal, Theódóru Þorsteinsdóttur og Hreiðars Oddssonar gegn atkvæðum Péturs Hrafns Sigurðssonar, Ásu Richardsdóttur, Birkis Jóns Jónssonar og Margrétar Júlíu Rafnsdóttur.
02
Bæjarstjórn - 1176. fundur
Bæjarlögmaður mun gera grein fyrir stöðu mála.
Lagt fram.
03
Bæjarráð - 2913. fundur
Bæjarlögmaður mun gera grein fyrir stöðu mála.
Bæjarráð vísar málinu til bæjarstjórnar.
04
Bæjarráð - 2896. fundur
Birkir Jón Jónsson óskar eftir umræðu varðandi söluna á Fannborg 2, 4 og 6.
Lagt fram.
05
Bæjarstjórn - 1167. fundur
Lögð fram umsögn, dags. 5. desember 2017, þar sem fram kemur tillaga um að tilboð Stólpa ehf. verði samþykkt og bæjarlögmanni verði heimilað að ganga til samninga við Stólpa ehf.
Bæjarstjórn samþykkir tilboð Stólpa ehf. í fasteignir í Fannborg og felur bæjarlögmanni að ganga til samninga við Stólpa ehf. með sjö atkvæðum þeirra Sverris Óskarssonar, Andra Steins Hilmarssonar, Ármanns Kr. Ólafssonar, Theódóru Þorsteinsdóttur, Karenar Halldórsdóttur, Hjördísar Johnson og Guðmundar Geirdal gegn atkvæðum Péturs Hrafns Sigurðssonar, Kristínar Sævarsdóttur og Birkis Jóns Jónssonar. Margrét Júlía Rafnsdóttir greiddi ekki atkvæði.
06
Bæjarráð - 2894. fundur
Lögð fram umsögn, dags. 5. desember 2017, þar sem fram kemur tillaga um að tilboð Stólpa ehf. verði samþykkt og bæjarlögmanni verði heimilað að ganga til samninga við Stólpa ehf.
Fundarhlé hófst kl. 8:14, fundi fram haldið kl. 8:21
Fundarhlé hófst kl. 8:25, fundi fram haldið kl. 8:46
Bæjarráð samþykkir með þremur atkvæðum gegn tveim atkvæðum Birkis Jóns Jónssonar og Kristínar Sævarsdóttur að leggja til við bæjarstjórn að gengið verði til samninga við Stólpa ehf.
07
Bæjarráð - 2880. fundur
Frá bæjarlögmanni, lögð fram drög að auglýsingu vegna sölu fasteigna Kópavogsbæjar í Fannborg.
Fundarhlé hófst kl.07:46. Fundi framhaldið kl. 07:51.
Undirrituð fagna því að húsnæðisskýrsla Kópavogs verði lögð til grundvallar uppbyggingu á reitnum. Ólafur Þór Gunnarsson, Kristinn Dagur Gissurarson og Sigurlaug Kristín Sævarsdóttir.
08
Bæjarstjórn - 1160. fundur
Frá sviðsstjóra umhverfissviðs, dags. 20. júní, lagt fram erindi þar sem óskað er eftir heimild bæjarráðs til að hefja opið söluferli á Fannborg 2, 4 og 6.
Fulltrúar minnihlutans lögðu fram eftirfarandi tillögu:
"Bæjarstjórn Kópavogs samþykkir að efna til hugmyndasamkeppni um skipulag og uppbyggingu Fannborgarreits, í anda húsnæðisskýrslu Kópavogs frá 2015 og samþykktar bæjarstjórnar frá 9. febrúar 2016 um sama mál.
Ólafur Þór Gunnarsson, Ása Richardsdóttir, Kristín Sævarsdóttir, Birkir Jón Jónsson"
Tillaga minnihlutans var felld með sjö atkvæðum Margrétar Friðriksdóttur, Ármanns Kr. Ólafssonar, Theódóru Þorsteinsdóttur, Sverrir Óskarssonar, Hjördísar Johnson og Guðmundar Geirdal en fjórir greiddu atkvæði með henni en það voru Kristín Sævarsdóttir, Birkir Jón Jónsson, Ólafur Þór Gunnarsson og Ása Richardsdóttir.
Tillaga um heimild til að hefja opið söluferli á Fannborg 2, 4 og 6 var samþykkt með sjö atkvæðum þeirra Margrétar Friðriksdóttur, Ármanns Kr. Ólafssonar, Theódóru Þorsteinsdóttur, Sverrir Óskarssonar, Hjördísar Johnson og Guðmundar Geirdal en fjórir greiddu atkvæði gegn henni en það voru Kristín Sævarsdóttir, Birkir Jón Jónsson, Ólafur Þór Gunnarsson og Ása Richardsdóttir.
Birkir Jón Jónsson lagði fram eftirfarandi bókun fyrir hönd minnihluta bæjarstjórnar:
"Bæjarstjórn samþykkti tillögu um forgang um samstarf við byggingarsamvinnufélög, leigufélög og byggingu félagslegra íbúða komi til sölu fasteigna í Fannborg með tíu atkvæðum þann 9.2.2016.
Ljóst er að þörfin fyrir slíkt húsnæði er enn meiri nú en þá og því ástæðulaust að hverfa frá fyrri samþykkt bæjarstjórnar.
Birkir Jón Jónsson, Ólafur Þór Gunnarsson, Ása Richardsdóttir, Kristín Sævarsdóttir"
Ármann Kr. Ólafsson, bæjarstjóri, lagði fram eftirfarandi bókun f.h. meirihlutans:
"Við sölu á Fannborgarreitnum er lagt til að tillit verði tekið til húsnæðisskýrslu sem unnin var í samráði allra flokka í bæjarstjórn. Hún tekur til allra þeirra þátta sem minnihlutinn vék að í sinni bókun.
Ármann Kr. Ólafsson, Margrét Friðriksdóttir, Theódóra Þorsteinsdóttir, Sverrir Óskarsson, Karen Halldórsdóttir, Hjördís Ýr Johnson, Guðmundur Geirdal"
09
Bæjarráð - 2875. fundur
Frá sviðsstjóra umhverfissviðs, dags. 20. júní, lagt fram erindi þar sem óskað er eftir heimild bæjarráðs til að hefja opið söluferli á Fannborg 2, 4 og 6.
Hlé var gert á fundi kl. 8:25. Fundi var fram haldið kl. 8:40.
Fulltrúar Samfylkingar, VG og Framsóknarflokks lögðu til að málinu verði vísað til skipulagsráðs til úrvinnslu.
Hlé var gert á fundi kl. 8:45. Fundi var fram haldið kl. 8:50.
Fulltrúar meirihlutans lögðu til að málinu verði vísað til bæjarstjórnar til afgreiðslu.
Tillaga minnihlutans var felld með þremur atkvæðum Theódóru Þorsteinsdóttur, Ármanns Kr. Ólafssonar og Karenar Halldórsdóttur en Pétur Hrafn Sigurðsson og Ólafur Þór Gunnarsson greiddu atkvæði með henni.
Bæjarráð samþykkir með þremur atkvæðum Theódóru Þorsteinsdóttur, Ármanns Kr. Ólafssonar og Karenar Halldórsdóttur tillögu meirihluta um að vísa afgreiðslu tillögunnar til bæjarstjórnar. Pétur Hrafn Sigurðsson og Ólafur Þór Gunnarsson greiddu ekki atkvæði.
10
Bæjarráð - 2870. fundur
Frá sviðsstjóra umhverfissviðs, dags. 9. maí, lögð fram beiðni til bæjarráðs um að hefja opið söluferli á Fannborg 2, 4 og 6.
Bæjarráð samþykkir að fresta málinu.