Beint í efni
Til baka í fundargerðir

Huldubraut 46. Pálmi Kristinsson. Beiðni um umsögn vegna umsóknar um nýtt rekstarleyfi fyrir gististað

Málsnúmer: 1612050

Ferill máls

01

Bæjarráð - 2850. fundur

Frá lögfræðideild, dags. 12. desember, lagt fram bréf Sýslumannsins á höfuðborgarsvæðinu, dags. 2. desember, þar sem óskað er eftir umsögn Kópavogsbæjar um umsókn Pálma Kristinssonar, kt. 120557-3359, um nýtt rekstrarleyfi fyrir gististað í flokki I, að Huldubraut 46, 200 Kópavogi, skv. 10. gr. laga nr. 85/2007 um veitingastaði, gististaði og skemmtanahald og 23. gr. rgl. nr. 585/2007. Samkvæmt 1. tl. 4. mgr. 10. gr. laga nr. 85/2007 staðfestir sveitarstjórn, sem umsagnaraðili, að afgreiðslutími og staðsetning staðar sem umsókn lýtur að sé innan þeirra marka sem reglur og skipulag sveitarfélagsins segja til um.

Bæjarráð samþykkir með fimm atkvæðum að veita jákvæða umsögn með vísan til minnisblaðs lögfræðideildar.