Tilfærsla verkefna innan stjórnsýslu Kópavogsbæjar. Innkaupamál og úthlutun lóða færð af umhverfissviði á stjórnsýslusvið
Málsnúmer: 1612281
Ferill máls
01
Innkauparáð - 6. fundur
Frá fjármálastjóra, lagt fram minnisblað vegna flutnings verkefna, dagsett 13.12.2016, ásamt upplýsingum um innkaupadeild og ?ráð hjá Reykjavíkurborg.
Lagt fram
02
Innkauparáð - 3. fundur
Farið yfir innkaupareglur með tiliti til erindisbréfs
Innkauparáð óskar eftir því að lögfræðideild taki saman minnisblað um áhrif nýrra laga á innkaupareglur og geri tillögur um breytingar á innkaupareglum til ráðsins.
03
Innkauparáð - 1. fundur
Lagt fram til kynningar erindisbréf Innkauparáðs.
Lagt fram
04
Bæjarstjórn - 1154. fundur
Ármann Kr. Ólafsson leggur fram tillögu um formann Innkauparáðs:
"Ingólfur Arnarsson fjármálastjóri".
Bæjarstjórn samþykkir tillöguna með 11 atkvæðum.
05
Bæjarstjórn - 1154. fundur
Frá lögfræðideild, lagt fram erindisbréf innkauparáðs Kópavogsbæjar. Bæjarráð frestaði afgreiðslu málsins á síðasta fundi þann 9. mars sl.
Bæjarstjórn staðfestir afgreiðslu bæjarráðs með 11 atkvæðum.
06
Bæjarráð - 2862. fundur
Frá lögfræðideild, lagt fram erindisbréf innkauparáðs Kópavogsbæjar. Bæjarráð frestaði afgreiðslu málsins á síðasta fundi þann 9. mars sl.
Bæjarráð samþykkir framlagt erindisbréf innkauparáðs Kópavogsbæjar og vísar því til staðfestingar bæjarstjórnar.
07
Bæjarstjórn - 1153. fundur
Frá lögfræðideild, lögð fram drög að erindisbréfi innkauparáðs Kópavogsbæjar.
08
Bæjarráð - 2861. fundur
Frá lögfræðideild, lögð fram drög að erindisbréfi innkauparáðs Kópavogsbæjar.
Bæjarráð frestar afgreiðslu málsins.
09
Bæjarráð - 2850. fundur
Frá bæjarstjóra, dags. 13. desember, lagt fram erindi vegna breytinga á skipulagi verkefna í stjórnsýslu bæjarins. Í breytingunni felst að innkaupamál og lóðaúthlutanir færast af umhverfissviði yfir á stjórnsýslusvið.
Bæjarráð samþykkir með fjórum atkvæðum að mótuð verði innkaupastefna sem bæjarráð staðfesti. Þá verði erindisbréf innkauparáðs lagt fyrir bæjarráð til samþykktar.