Beint í efni
Til baka í fundargerðir

Skráning menningarminja, fornleifa, húsa og mannvirkja - skil á gögnum

Málsnúmer: 1701497

Ferill máls

01

Skipulagsráð - 3. fundur

Frá bæjarráði.

Lagt fram erindi Minjastofnunar Íslands dags. 10. janúar 2017 og varðar skráningu menningarminja; formminja, húsa og mannvirkja. Í erindinu kemur m.a. fram að stofnuninn er að kalla eftir skilaskildum gögnum sem orðið hafa til við skráningu menningarminja eftir 1. janúar 2013. Sólveig H. Jóhannsdóttir, skipulags- og byggingardeild gerir grein fyrir málinu.

Lagt fram og kynnt. Fram kom að frá árinu 2013 hafa engar breytingar verið á skráningu menningarminja í bæjarfélaginu.

02

Bæjarráð - 2854. fundur

Frá Minjastofnun Íslands, dags. 10. janúar, lagt fram erindi um skil á gögnum vegna skráningar menningarminja; fornleifa, húsa og mannvirkja.

Bæjarráð samþykkir að vísa málinu til skipulagsráðs til afgreiðslu.