Óleyfisíbúðir, fyrirspurn bæjarfulltrúa Ólafs Þórs Gunnarssonar
Málsnúmer: 1701713
Ferill máls
01
Bæjarráð - 2875. fundur
Sviðsstjóri velferðarsviðs og slökkvilisstjóri höfuðborgarsvæðisins mæta á fund bæjarráðs til að ræða óleyfisbúsetu í atvinnuhúsnæði í Kópavogi í samræmi við beiðni þar um sem barst á fundi þann 15. júní sl.
Lagt fram.
02
Bæjarráð - 2874. fundur
Frá bæjarstjóra, lagt fram minnisblað SHS frá 2. júní um kortlagningu óleyfisbúsetu í atvinnuhúsnæði í Kópavogi.
Ólafur Þór Gunnarsson óskar eftir að fá sviðsstjóra Velferðarsviðs á næsta fund vegna málsins.
03
Bæjarráð - 2854. fundur
Undirritaður óskar eftir upplýsingum/yfirliti um
a) Fjölda s.k. óleyfisíbúða í Kópavogi
b) Áætlaðan fjölda íbúa í slíku húsnæði
c) Skiptingu íbúða milli húsnæðis í iðnaðarhverfum og íbúðahverfum
d) Skiptingu (fjölda) eftir hverfum
e) Upplýsingar um brunavarnir og eftirliti með þeim á þessum stöðum
Nokkur umræða skapaðist um liðna helgi vegna bruna á Smiðjuvegi í iðnaðarhúsnæði, þ.s. kom í ljós að voru all-margir íbúar. Góð samstaða hefur verið um húsnæðismál í bæjarstjórn Kópavogs og upplýsingar sem þessar mikilvægt innlegg í umræðu um lausnir á húsnæðisvanda og til að gera áætlanir um aðgerðir til lausnar.
Ólafur Þór Gunnarsson
Bæjarráð vísar málinu til afgreiðslu sviðsstjóra umhverfissviðs.
Bókun Ármanns Kr. Ólafssonar:
"Í kjölfar brunans í Smiðjuhverfinu í síðustu viku fundaði ég með slökkviliðsstjóra vegna brunans og stöðunnar í bænum hvað óleyfisíbúðir varðar."