Endurgreiðsluhlutfall Kópavogsbæjar vegna lífeyrisskuldbindinga Lífeyrissjóðs starfsmanna Kópavogsbæjar
Málsnúmer: 1702129
Ferill máls
01
Bæjarstjórn - 1151. fundur
Frá Brú lífeyrissjóði, dags. 1. febrúar, lagt fram erindi um endurgreiðsluhlutfall Kópavogsbæjar vegna lífeyrisskuldbindinga Lífeyrissjóðs starfsmanna Kópavogsbæjar, þar sem lagt er til að endurgreiðsluhlutfall launagreiðanda á greiddum lífeyri vegna ársins 2017 verði óbreytt milli ára eða 59%. Stjórn lífeyrissjóðs starfsmanna Kópavogsbæjar samþykkti tillöguna fyrir sitt leyti og vísaði málinu til afgreiðslu bæjarstjórnar.
Bæjarstjórn samþykkir með 11 atkvæðum tillögu um 59% endurgreiðsluhlutfall launagreiðanda á greiddum lífeyri vegna ársins 2017.
02
Bæjarráð - 2857. fundur
Frá Brú lífeyrissjóði, dags. 1. febrúar, lagt fram erindi um endurgreiðsluhlutfall Kópavogsbæjar vegna lífeyrisskuldbindinga Lífeyrissjóðs starfsmanna Kópavogsbæjar, þar sem lagt er til að endurgreiðsluhlutfall launagreiðanda á greiddum lífeyri vegna ársins 2017 verði óbreytt milli ára eða 59%. Stjórn lífeyrissjóðs starfsmanna Kópavogsbæjar samþykkti tillöguna fyrir sitt leyti og vísaði málinu til afgreiðslu bæjarstjórnar.
Bæjarráð vísar málinu til bæjarstjórnar til afgreiðslu.