Til baka í fundargerðir
Austurkór 104, íb. 232-6116, Eignafélag Akralindar ehf. Umsagnarbeiðni vegna umsóknar um nýtt rekstrarleyfi
Málsnúmer: 1702262
Ferill máls
01
Bæjarráð - 2863. fundur
Frá lögfræðideild, dags. 21. mars, lagt fram bréf Sýslumannsins á höfuðborgarsvæðinu, dags. 10. febrúar, þar sem óskað er umsagnar um umsókn Eignarfélags Akralindar ehf., kt. 700899-2099, um nýtt rekstrarleyfi fyrir íbúðagistingu í flokki II, að Austurkór 104, 203 Kópavogi, skv. 10 gr. laga nr. 85/2007 og 26. gr. reglugerðar nr. 1277/2016. Samkvæmt 1. tl. 4. mgr. 10. gr. laga nr. 85/2007 staðfestir sveitarstjórn sem umsagnaraðili að afgreiðslutími og staðsetning staðar sem umsókn lýtur að sé utan þeirra marka sem reglur og skipulag sveitarfélagsins segja til um.
Bæjarráð leggst gegn veitingu umbeðins leyfis með vísan til framlagðrar umsagnar lögfræðideildar.