Til baka í fundargerðir
Hamraborg 1a til 11. Endurskoðun skipulags. Deiliskipulag.
Málsnúmer: 1702351
Ferill máls
01
Skipulagsráð - 3. fundur
Lagt fram erindi skipulags- og byggingardeildar Umhverfissviðs þar sem óskað er heimildar skipulagsráðs til að hefja skipulagsvinnu við Hamraborg sem gerir ráð fyrir þéttingu byggðar og betri nýtingu á opnum svæðum og lóðum. Nánar tiltekið nær svæðið til Hamraborgar 1, 1a, 3, 5, 7, 9 og 11.
Skipulagssvæðið er skilgreint sem það svæði sem nær frá húshliðum Hamrabogar 10 til 24, til norðurs, lóðarmörkum Álfhólsvegar 2 og 15 til austurs, Auðbrekku 2 og 4 til suðurs og Hamraborgar 1a til vesturs.
Skipulagsráð samþykkir ofangreint erindi.