Beint í efni
Til baka í fundargerðir

Aðstaða fyrir knattspyrnudeild Breiðabliks

Málsnúmer: 1702428

Ferill máls

01

Íþróttaráð - 81. fundur

Fulltrúi Bjartrar Framtíðar í íþróttaráði óskaði eftir því "að aðstaða knattspyrnudeildar Breiðabliks yrði tekin fyrir á næsta fundi ráðsins, jafnframt því að kalla eftir göngum um ferli málsins innan stjórnsýslunnar".

Lögð fram gögn um ferli málsins annars vegar innan íþróttaráðs og hins vegar innan stjórnsýslu Kópavogsbæjar sl. mánuði.

Ármann Kr. Ólafsson bæjarstjóri mætti á fundinn og gerði grein fyrir þeirri vinnu sem hefur átt sér stað hjá Kópavogsbæ varðandi aðstöðumál knattspyrnunnar hjá Breiðablik.

Fulltrúi Bjartrar framtíðar, Rannveig Bjarnadóttir lagði fram eftirfarandi spurningar. "Í kjölfar félagsfundar hjá knattspyrnudeild Breiðabliks langar mig að fá svör við eftirfarandi spurningum,

1. Við gerð fjárhagsáætlunar af hverju er sú ákvörðun tekin að veita 140 milljónum frekar í Fagralund í stað gervigrass við Fífuna gegn ósk Breiðabliks og af hverju kom þetta ekki inn á borð íþróttaráðs?

2. Af hverju kemur þetta mál ekki inn á borð íþróttaráðs í áframhaldandi vinnslu málsins innan stjórnsýslunnar?

3. Hver ákveður hvað kemur inn borð ráðsins

4. Þar sem íþróttaráð er ráðgefandi ráð af hverju koma ekki svona stórar ákvarðanir um málefni íþróttafélaga bæjarins inn til ráðsins til umsagnar?"

Fulltrúi Samfylkingarinnar, Hlín Bjarnadóttir lagði fram eftirfarandi spurningar fyrir fundinn;

"Á sl., 4 árum hefur íþróttaráð komið að mörgum málum er varða málaflokkinn m.a. hvað varðar styrkveitingar, frístundastyrki, úthlutanir tíma í mannvirkjum, aðstöðumálum og áhöldum í mannvirkjum bæjarins, hverfaskiptingum í knattspyrnu svo að eitthvað sé nefnt.

Spurningar varðandi verklag og ákvarðanir á staðsetningu og uppbyggingu á fyrirhuguðum gervigrasvelli á félagssvæði Breiðabliks í knattspyrnu á vegum Kópavogsbæjar. Fulltrúi Samfylkingarinnar í íþróttaráði spyr í kjölfar umræðna á félagsfundi knattspyrnudeildar Breiðabliks þann 20.3 sl.

1) Í hvaða ferli er málið nú hjá Kópavogsbæ og til umræðu í hvaða nefndum á vegum bæjarins ?

2) Af hverju hefur málið ekki verið tekið fyrir hjá íþróttaráði sem er ráðgefandi hvað varðar málaflokk íþrótta- og tómstundamála hjá bænum, er það fyrirhugað ?

3) Hver/hverjir ákveða hvort að málið fari til umfjöllunar hjá íþróttaráði, ef slík ákvörðun liggur fyrir hverjir tóku þá ákvörðun og hvenær?

4) Verður sett af stað frekari vinna og mat í kjölfar skýrslu VSÓ fyrir Kópavogsbæ árið 2017, s.s. kostnaðargreining á byggingu frekari aðstöðu Breiðabliks í knattspyrnu og eða öðrum íþróttagreinum sem og verður haft samráð við félagið varðandi framtíðar uppbyggingu á æfinga- og keppnissvæðum."

Bæjarstjóri svaraði spurningum fundarmanna og yfirgaf fundinn kl. 19:15.

02

Íþróttaráð - 70. fundur

Á síðasta fundi ráðsins kom fram ósk um að aðstöðumál knattspyrnudeildar Breiðabliks yrði rædd á næsta fundi ráðsins.

Samanber fyrsta dagskrárlið hefur sú beiðni verið uppfyllt.

03

Íþróttaráð - 69. fundur

Matthias Imsland fulltrúi Framsóknar í íþróttaráði lagði fram eftirfarandi bókun:

"Ég undirritaður óska eftir að rætt verði á næsta fundi sú alvarlega staða sem kom fram í umræðu á aðalfundi knattspyrnudeildar Breiðabliks að deildin íhugi að takmarka fjölda iðkenda hjá félaginu vegna aðstöðuleysis"

Jón Finnbogason, formaður Íþróttaráðs, bókar eftirfarandi; "ég fagna bókun Matthiasar um að tilgreint mál verði tekið til umræðu á næsta fundi íþróttaráðs. Málið kannist ég vel við þar sem ég hef fylgst vel með þeim vanda sem Knattspyrnudeild Breiðabliks er í enda mjög umfangsmikið og flott starf sem fram fer innan félagsins. Málið er reyndar nú þegar í formlegum farvegi innan stjórnsýslu Kópavogs þar sem bæjarstjóri Kópavogs, Ármann Kr. Ólafsson, hefur sett af stað vinnu við að greina ítarlega það starf sem fram fer innan knattspyrnudeildar Breiðabliks og nýtingu á mannvirkinu m.v. umfang starfsins. Þá hafi ég einnig sótt fjölmennan fund hjá Knattspyrnudeild Breiðabliks þar sem formaður Knattspyrnudeildar Breiðabliks, Ólafur H. Ólafsson, fór yfir stöðu félagsins. Málið verður tekið á dagskrá á næsta fundi íþróttaráðs."