Beint í efni
Til baka í fundargerðir

Hellisheiðarvirkjun. Úrræði Orkuveitu Reykjavíkur vegna mengunar. Tillaga frá Ólafi Þór Gunnarssyni

Málsnúmer: 17031084

Ferill máls

01

Bæjarráð - 2871. fundur

Forstjóri Orkuveitu Reykjavíkur, Bjarni Bjarnason, mætir á fund ráðsins til að ræða mengun frá Hellisheiðarvirkjun í samræmi við beiðni þar um sem kom fram á fundi bæjarráðs.

Lagt fram.

02

Bæjarráð - 2863. fundur

Tillaga frá Ólafi Þór Gunnarssyni:

"Undirritaður fer fram á að forstjóri Orkuveitu Reykjavíkur verði kallaður á fund ráðsins. Töluverð brögð hafa verið að því í vetur að gætt hafi mengunar frá Hellisheiðarvirkjun, hennar orðið vart í byggð, og ekki að sjá að breyting hafi orðið á þrátt fyrir fyrirheit um annað. Undirritaður telur því rétt að forstjórinn verði boðaður á fund til viðræðna við bæjarráð til að ræða til hvaða úrræða orkuveitan hyggst grípa til að bæta úr."

Bæjarráð tekur undir tillögu Ólafs Þórs Gunnarssonar.