Beint í efni
Til baka í fundargerðir

Viðhald gervigrasvalla - Námskeið á vegum Kópavogsvallar

Málsnúmer: 17031420

Ferill máls

01

Íþróttaráð - 70. fundur

Fulltrúi Samfylkingarinnar vakti máls á frábæru framtaki forstöðumanns og starfsmanna Kópavogsvallar fyrir að hafa staðið fyrir mjög velheppnaðri ráðstefnu/námskeiði um viðhald gervigrasvalla. Á námskeiðinu voru erlendir fagaðilar fyrirlesarar og var það mjög vel sótt af umsjónarmönnum gervigrasvalla af öllu landinu. Vildi hann koma á framfæri hrósi til forstöðumannsins.

Íþróttaráð tók undir hrósið og þakkaði forstöðumanni og hans fólki fyrir framtakið.