Beint í efni
Til baka í fundargerðir

Breyting á samþykktum Lífeyrissjóðs starfsmanna Kópavogsbæjar

Málsnúmer: 1703871

Ferill máls

01

Bæjarstjórn - 1154. fundur

Frá Brú lífeyrissjóði, dags. 16. mars, lögð fram tillaga að breytingum á samþykktum Lífeyrissjóðs starfsmanna Kópavogsbæjar sem samþykkt var á fundi stjórnar lífeyrissjóðsins þann 30. janúar sl.

Bæjarstjórn staðfestir afgreiðslu bæjarráðs með 10 atkvæðum og hjásetu Sverris Óskarssonar.

Bókun:

"Mun ekki samþykkja framlagða tillögu um breytingar á samþykktum lífeyrissjóðsins þar sem undirritaður telur ekki þörf á að gera breytingu á 4. grein og 13. grein og tel ekki þörf á að breyta sjálfstæði sjóðsins. En nefni að undirritaður er hlynntur breytingum á 7. grein og 8. grein samþykkta lífeyrissjóðsins.

Sverrir Óskarsson"

02

Bæjarráð - 2863. fundur

Frá Brú lífeyrissjóði, dags. 16. mars, lögð fram tillaga að breytingum á samþykktum Lífeyrissjóðs starfsmanna Kópavogsbæjar sem samþykkt var á fundi stjórnar lífeyrissjóðsins þann 30. janúar sl.

Bæjarráð samþykkir með fimm atkvæðum tillögu að breytingum á samþykktum Lífeyrissjóðs starfsmanna Kópavogsbæjar og vísar tillögunni til afgreiðslu bæjarstjórnar.