Til baka í fundargerðir
Sumardvöl í Reykjadal, ósk um aðild að frístundastyrkjakerfi
Málsnúmer: 1704308
Ferill máls
01
Íþróttaráð - 71. fundur
Lagt fram erindi dags. 6.5.2017 um ósk um aðild Styrktarfélags lamaðra og fatlaðra að frístundastyrkjakerfi Kópavogs.
Félagið býður upp á sumardvöl fyrir fötluð börn og ungmenni í Reykjadal. Starfsemin er með aðild að frístundakerfi Reykjavíkur.
Íþróttaráð samþykkir að heimila Styrktarfélagi lamaðra og fatlaðra aðild að Frístundastyrkjakerfi Kópavogsbæjar.